Það er ekkert annað en stórglæsilegt einbýlið sem nú er komið á sölu í Lækjarkinn í Hafnarfirði, en um er að ræða mikið endurnýjað, tæplega 160 fermetra, einbýli á þremur hæðum.
Í eigninni eru fjögur svefnherbergi og hvorki meira né minna en þrjú baðherbergi svo enginn ætti að þurfa að slást um salernið á kvöldin sem er plús í stærri fjölskyldum.
Eins fylgir eigninni fallegur og rúmgóður bílskúr.
Eldhús hefur verið endurnýjað með sérlega hlýlegum og smekklegum hætti. Það er svo opið við borðstofu og stofu að hluta sem skapar fallegt alrými. Úr eldhúsi er svo fallegt útsýni yfir lækninn í Hafnarfirði.
Stofan er svo rúmgóð og björt og þaðan er útgengt í snotran garðinn sem er bæði fallegur og skjólsæll í góðri rækt og með gróðurhúsi, matjurtarhorni og fallegum trjágróðri.
Á efri hæð má svo finna hjónaherbergi þar sem er útgengt á litlar svalir. Tvo góð herbergi eru þar til viðbótar sem hefur verið opnað á milli, en einfalt væri að loka þeim aftur. Þar er svo baðherbergi með stóru og góðu hornbaðkari og sturtuklefa.
Niðri í kjallara má svo finna gott þvottahús og rúmgott herbergi og lítið salerni. Þaðan er hægt að ganga út á bílastæði.
Bílskúrinn er svo stór og fínn, 33 fermetrar að stærð og með hita og vatni.