Kim Kardashian vakti mikla athygli á Met Gala sem fram fór í gær en á þessu árlega galakvöldi klæðast stjörnurnar sínu fínasta pússi í samræmi við þema hvers árs.
Þemað í ár var In America: An Anthology of Fashion eða Í Ameríku: Úrval af tísku.
Kim klæddist kjólnum sem Marilyn Monroe var í þegar hún söng afmælissönginn fyrir John F. Kennedy, þáverandi forseta Bandaríkjanna, árið 1962.
Hún þurfti sannarlega að hafa fyrir því að fá kjólinn en hann er geymdur á safni Ripley´s Believe It og Not! og heimsótti hún safnið endurtekið, auk þess að þurfa að tryggja mikla öryggisgæslu þannig að ekkert kæmi fyrir þennan sögufræga kjól. En það var ekki allt.
Kim þurfti ennfremur að grenna sig um 7 kíló til að komast í þennan litla kjól.
„Þetta var eins og að undirbúa sig fyrir hlutverk,“ sagði Kim sem einnig lét aflita hárið á sér fyrir kvöldið, og við kjólinn var hún í hvítum feldi til að líkjast Marilyn sem mest.
Seinna um kvöldið hámaði hún síðan í sig kleinuhringi og pítsu á hótelherberginu eftir að hafa svelt sig af kolvetnum í tæpan mánuð.
Hún var heldur ekki lengi í kjólnum heldur gekk hún rauða dregilinn í honum og var síðan með sérstaka skiptiaðstöðu við hinn endann þar sem hún gat skipt yfir í annan kjól. Kim lagði þetta því allt á sig aðeins til að klæðast kjólnum í nokkrar mínútur.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hún fer öfgafullar leiðir vegna klæðnaðar en á Met Gala árið 2019 var hún í svo þröngum kjól frá Thierry Mugler að hún gat hvorki sest niður né farið á salerni á meðan hún var í kjólnum.
View this post on Instagram