Í nýjasta þættinum af „The Kardashians“ á streymisveitinnu Hulu er Kourtney ekkert að fela að hún vill gjarnan eignast barn með Travis. Hún virðist reiðubúin til að nota sérstakar aðferðir til að þetta takist en hún er orðin 43 ára.
Í þættinum segir hún frá frjósemislækni þeirra hjóna: „Hann sagði okkur að það sem gæti hjálpað væri að ég myndi drekka sæðið hans fjórum sinnum í viku.“
Þetta virðist falla vel í kramið hjá Travis sem sagði að „sæðisfrumur hans væru í toppstandi“.
Kourtney á þrjú börn á aldrinum 7 til 12 ára með Scott Disick. Travis á tvö börn, 16 og 18 ára, með Shanna Moakler. Auk þess á hann stjúpdótturina Atiana De La Hoya sem er 23 ára.