Dagmar Una Ólafsdóttir, sölu- og markaðsstjóri Dr. Hauschka á Íslandi, hefur sett sumarbústað sinn við Þingvallavatn á sölu. Bústaðurinn hefur þá skemmtilegu staðsetningu, Valhallarstígur nyrðri, sem mörgum gæti þótt sniðug tenging enda var Dagmar gift sjálfstæðismanninum Eyþóri Arnalds þegar hún eignaðist bústaðinn og eins og flestir vita nefnast höfuðstöðvar Sjálfstæðismanna Valhöll.
Bústaðurinn er frábærlega staðsettur og svo þétt við Þingvallavatn að maður gæti líklega hoppað af pallinum út í vatnið, þó að blaðamaður ráði fólki frá því enda vatnið oftast óbærilega kalt. Í fasteignaauglýsingunni segir:
„Staðsetning hússins í þessari náttúruperlu er alveg einstök en húsið stendur hátt við bakka Þingvallavatns. Stórir gluggar í stofu og eitt fallegasta útsýni á landinu yfir Þingvallavatn og fjallahringinn.“
Bústaðurinn samanstendur af forstofu, baðherbergi með sturtu, tveimur svefnherbergjum, búri og eldhúsi. Opið er svo í rúmgóða og bjartastofu og þaðan er gengið út á stóra verönd á móti suðri sem nær aftan við húsið.
Og að sjálfsögðu má finna gott bátaskýli við vatnið.
Svæðið er á lista heimsminjaskrá UNESCO og fylgir allt innbú með nema persónulegir munir.
Nánar má lesa um eignina á fasteignavef DV