fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Fókus

Birta er í Texas að taka upp klám – Sýnir frá tökustaðnum og deilir ferlinu

Fókus
Föstudaginn 8. apríl 2022 09:47

Myndir/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Birta Blanco er stödd um þessar mundir í Texas að taka upp klám fyrir OnlyFans-síðu sína. Hún hefur verið dugleg að sýna frá ferðalaginu á Instagram-síðu sinni og svaraði spurningum fylgjenda í gær.

Birta er úti að vinna með framleiðslufyrirtækinu Marcos Orlando og sýnir frá tökustaðnum, en rýmið er kallað The Lobby.

Samkvæmt heimasíðu Marcos Orlando er hægt að leigja aðstöðuna fyrir hundrað dollara á klukkutímann eða tæplega þrettán þúsund krónur.

Birta greindi frá því að hún myndi taka upp klám í þrjá daga og fyrsti tökudagurinn hafi verið í gær.

Birta að sýna frá kaffistofunni á tökustaðnum.

Hún sýndi frá rýminu, þar sem hún gisti einnig, og fatnaðinum sem hún mun koma til með að klæðast.

Birta að sýna fötin sem hún mun koma til með að klæðast í tökum. Skjáskot/Instagram
Skjáskot/Instagram

Í gær byrjuðu tökur og var hún klædd rauðum kjól með ól í kringum hálsinn. „Í dag erum við að fara að gera myndatöku og alls konar,“ sagði hún í gær og blikkaði myndavélina.

Birta neitaði að svara þegar fylgjandi spurði hvað hún sé að fá mikið borgað fyrir þetta.

Þarna svaf Birta fyrstu nóttina, en dýnan var á gólfinu á tökustaðnum. Skjáskot/Instagram

Aðspurð hvort hún fer yfir myndiefnið með fyrirtækinu eftir að tökum sé lokið og hvort henni þyki það erfitt sagði hún: „Jaaa en nei ekki erfitt.“

Skjáskot/Instagram
Skjáskot/Instagram

„Ókei, við erum búin að taka upp fyrir daginn í dag. Ég fór í sturtu því við notuðum svo mikið af spreyolíu á líkamann [og ég] þurfti að þrífa það af. Núna erum við örugglega að fara heim til þeirra,“ segir Birta. Hún segir að á tökustað hafi mikið verið rætt um mat og hún sé spennt fyrir því að prófa framandi matargerð.

Skjáskot/Instagram
Birta sagði að pásur væru mjög mikilvægar.

Birta tilkynnir svo að hún muni koma til með að birta myndböndin frá Texas á OnlyFans-síðu sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Anna Lilja og Gestur nýtt ofurpar

Anna Lilja og Gestur nýtt ofurpar
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tjáir sig um neikvæðar athugasemdir um farðalausa Pamelu

Tjáir sig um neikvæðar athugasemdir um farðalausa Pamelu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Veðrið á Íslandi vekur mikla athygli – Margir væru til í að skipta við okkur

Veðrið á Íslandi vekur mikla athygli – Margir væru til í að skipta við okkur
Fókus
Fyrir 3 dögum

Forsetafjölskyldurnar hittust á Bessastöðum

Forsetafjölskyldurnar hittust á Bessastöðum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Stórstjarnan að mestu hætt neyslunni – Eitt getur hann ekki gefið upp á bátinn

Stórstjarnan að mestu hætt neyslunni – Eitt getur hann ekki gefið upp á bátinn
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þekkir þú brúðhjónin á þessum myndum? – Ljósmyndara leitað

Þekkir þú brúðhjónin á þessum myndum? – Ljósmyndara leitað