fbpx
Laugardagur 23.nóvember 2024
Fókus

Ljótustu portrett kóngafólksins

Guðrún Gyða Eyþórs Árnadóttir
Miðvikudaginn 20. apríl 2022 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kóngar, drottningar og önnur fyrirmenni hafa haft fyrir sið í gegnum aldirnar að að látið mála af sér myndir. Þar sem engir voru Instagramfilternir til að fegra fólk fengu listamennirnir oftar en ekki þau fyrirmæli að fegra viðfangsefnin. Sum málverkin eru þó miður falleg, önnur fyndin og enn önnur hreinlega sorgleg. Lítum á nokkur sem hafa skapað sér miður gott nafn.

Ferdinand II

Ferdinand II (1452-1516) er þekktur fyrir að hafa sameinað Spán, styrkt Kristófer Kólumbus til Ameríkuferðarinnar og stofna hinn illræmda rannsóknarrétt. Ferdinand var mikill dugnaðarforkur en á þessu málverki eftir Michel Sittow lítur hann út fyrir að vera að koma af íslenskri verslunamannahelgarhátíð. Glerþunnur.

Ferdinand II

Maria-Anna af Bavariu

Hertogaynjan Maria-Anna af Bavariu (1610-1665) var einnig dugleg kona. Hún var virk í stjórnmálum í Austurríki og mun hafa gengið í öll verk, ólíkt mörgum prinsessunum. Það hefur að líkindum verið erfitt að stússast í pólitíkinni því á málverkinu virði Maria Anna vera óskaplega þreytt eitthvað og pirruð. Eins og hún bara nenni þessu ekki lengur.

Maria-Anna af Bavariu

 

Leopold I

Leopold I var af Habsborgarættinni eins og augljóslega má sjá á andlitsfalli hans. Leopold var sannkallaður áhrifavaldur síns tíma og hafði tvær ástríður í lifinu: Að berja á Ottómannveldinu og Frökkum en líta samt æðislega út. Hann var afar greindur og líklega einn menntaðasti valdamaður síns tíma en hans mesta ást var ítalskur ballet og óperur. Hann lét setja upp ótal sýningar i höll sinni og tók oftar en ekki þátt í sýningunum. Á málverkinu er hann einmitt í búning úr einu leikritanna en hann elskaði fátt meira en að klæða sig upp. Leopold var svo ánægður með þetta verk að hann fékk málarann, Jan Thomas, til að mála fjölda málverka af sér og fjölskyldu sinni.

 

Leopold I keisari

James II

James II varð konungur Skotlands aðeins 6 ára gamall. Fjöldi samsæra voru gerð til að losna við unga kónginn sem tókst að sigrast á öllum sínum andstæðingur. James gerði miklar umbætur í stjórnmálum í stjórnkerfinu og skattkerfinu. Hann stóð einnig fyrir stofnun háskólans i Edinborg. Það hlýtur að vera erfitt að sigrast á óvinum, setja skattalög og stofna háskóla því James virðist einfaldlega alveg búinn á því. Bugaður.

James II

Ljóta hertogaynjan

Það veit enginn hvað ,,Ljóta hertogaynjan“ hét í alvöru en þetta makalausa málverk frá 1513 vekur enn undrun og aðdáun.  Í dag er talið fyrir víst að konan hafi þjáðst af afar sjaldgæfu afbrigið af Paget sjúkdómnum. Talið er að málarinn, Quinten Massys, hafi málað hana nákvæmlega eins og hún leit út enda þekktur fyrir það í sínum portrettmyndum. Paget sjúkdómur veldur því að beinvöxtur er afar óeðlilegur. Ljóta hertogaynjan virðist hafa farið afar illa úr út sjúkdómnum en það er þekkt að hann leggist á höfuðkúpu. Þar sem sjúkdómurinn kemur oft ekki fram fyrr en á fullorðinsárum getur verið að konan hafi verið gullfalleg á yngri árum. Átakanlegt en tilfinningaríkt verk, málað af virðingu.

Ljóta hertogaynjan

Filip IV

Mikill fjöldi ljótra málverka á upptök sín á Spáni. Þar með talið þetta málverk af Filip IV konungi (1605-1665). Filip var við völd í hvorki meira né minna en 44 ár og eyddi meirihluta þeirra í stríðsbrölt við Frakkland. Þess á milli studdi hann listir af miklum móð, safnaði málverkum og studdi fjölda málara fjárhagslega.

Filip IV

Filip var svo ánægður með þetta málverk málarans Gaspar de Crayer að hann lét hann mála það aftur, nákvæmlega eins en nú með uppáhalds dverg sinn hér við hlið. Spænska hirðin var mjög upptekin af dvergum og safnaði þeim að sér. Hvort það var ástæðan eða hvort Filip vildi einfaldlega virka hávaxnari er erfitt um að segja.

Karl II

Sonur Filips var Karl II sem er oft nefndur innræktaðasti maður sögunnar. Amma hans og móðursystir voru sama konan og móðir hans var systurdóttir föður hans. Hann var mágur Leopolds I hér að ofan sem einnig var föðurbróðir hans. Öll bölvun Habsborgarættarinnar virðist hafa dunið á vesalings Karli sem hafði svo stóran Habsborgarkjálka að hann gat vart borðað, var þroskaskertur og þjáðist af þunglyndi og flogaveiki. Með fráfalli hans lauk valdatíma Habsborgaranna. Nánar má lesa um Karl II hér.

Danska konungsfjölskyldan

Ef við færum okkur inn í nútímann þá er ekki einhugur um hvort þetta málverk Thomas Kluge sé fallegt eða ljótt. Það var málað 2013 og fyrsta málverkið sem gert er að dönsku konungsfjölskyldunni í 125 ár. Sumir segja það eins og veggspjald úr hryllingsmynd. Aðir segja verkið minna á lélega æfingu í Photoshop. Enn aðrir hrósa því sem snilld. Margrét drottning tók formlega við verkinu en athygli vakti að hún mælti ekki orð um hug sinn til þess. Kurteins en köld sögðu þeir sem á horfðu.

Danska konungsfjölskyldan

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Sharon Osbourne dauðsér eftir Ozempic – „Þetta sýnir bara hætturnar við þessi lyf sem lofa árangri strax“

Sharon Osbourne dauðsér eftir Ozempic – „Þetta sýnir bara hætturnar við þessi lyf sem lofa árangri strax“
Fókus
Í gær

Simmi Vill segir að þetta sé stærsta kjarabótin fyrir íslenskar fjölskyldur – „Nú verð ég kallaður karlrembupungur“

Simmi Vill segir að þetta sé stærsta kjarabótin fyrir íslenskar fjölskyldur – „Nú verð ég kallaður karlrembupungur“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segja atvikið í bardaganum sýna að úrslitin hafi verið fyrir fram ákveðin

Segja atvikið í bardaganum sýna að úrslitin hafi verið fyrir fram ákveðin
Fókus
Fyrir 3 dögum

Dómnefnd FKA skipuð fyrir árlega viðurkenningarhátíð 

Dómnefnd FKA skipuð fyrir árlega viðurkenningarhátíð 
Fókus
Fyrir 3 dögum

Kynlífsóðu klámstjörnunni sparkað úr landi

Kynlífsóðu klámstjörnunni sparkað úr landi
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Konur sem sætta sig við framkomu sem þær eiga ekki skilið eru kannski í samböndum sem þeim líður ekki vel í“

„Konur sem sætta sig við framkomu sem þær eiga ekki skilið eru kannski í samböndum sem þeim líður ekki vel í“