fbpx
Fimmtudagur 27.febrúar 2025
Fókus

Will Smith biður Chris Rock afsökunar á löðrungnum – „Ég fór yfir strikið“

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 29. mars 2022 04:23

Mynd/EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það fór varla fram hjá neinum að Will Smith snaraði sér upp á svið á Óskarsverðlaunaafhendingunni á sunnudagskvöldið og löðrungaði Chris Rock. Í gærkvöldi sendi Smith frá sér afsökunarbeiðni þar sem hann bað Chris Rock afsökunar sem og Óskarsakademíuna.

Í langri færslu á Instagram baðst Smith afsökunar. „Ofbeldi, í hvaða formi sem það er, er eitrað og eyðileggjandi. Hegðun mín á Óskarsverðlaunaafhendingunni í gær var óásættanleg og ófyrirgefanleg. Ég vil gjarnan biðja þig afsökunar, Chris. Ég fór yfir strikið og ég gerði mistök. Ég skammast mín og hegðun mín sýnir ekki þann mann sem ég vil gjarnan vera,“ skrifaði Smith.

Hann fór upp á svið og löðrungaði Rock eftir að hann hafði gert grín að hári Jada Pinkett Smith, eiginkonu Will Smith, eða öllu heldur hárleysi hennar. Hún þjáist af húðsjúkdómi sem veldur blettaskalla. Í brandara sínum vísaði Rock í kvikmyndina G.I. Jane frá 1997 en í henni er aðalkvenpersónan snoðuð.

„Grín á minn kostnað er hluti af starfinu en grín um sjúkdóm Jada var meira en ég þoldi og ég brást við af mikilli tilfinningasemi,“ skrifaði Smith á Instagram.

Hann biður einnig Óskarsakademíuna afsökunar, framleiðendur hátíðarinnar, áhorfendur og „alla þá sem horfðu víða um heim“. Skömmu eftir löðrunginn fór Smith aftur upp á svið og tók við verðlaunum sem besti karlinn í aðalhlutverki fyrir leik sinn í kvikmyndinni King Richard.

Óskarsakademían tilkynnti í gær að hún fordæmi það sem Smith gerði og að rannsókn sé hafin á atvikinu. Ekki liggur því enn fyrir hvort þetta hafi afleiðingar fyrir Smith og hvort hann verði sviptur Óskarsverðlaununum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Ég bara þrælaði mér út og var sjálf minn versti þrælahaldari“

„Ég bara þrælaði mér út og var sjálf minn versti þrælahaldari“
Fókus
Í gær

Sölvi birtir kafla úr bók sinni sem hann taldi samfélagið ekki tilbúið fyrir árið 2019

Sölvi birtir kafla úr bók sinni sem hann taldi samfélagið ekki tilbúið fyrir árið 2019
Fókus
Í gær

Hafþór Júlíus lagði alla verðlaunagripina að veði til að ná hefndum

Hafþór Júlíus lagði alla verðlaunagripina að veði til að ná hefndum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tilnefningar til Eddunnar 2025

Tilnefningar til Eddunnar 2025
Fókus
Fyrir 2 dögum

Afmælið breyttist í martröð sekúndu eftir að þessi mynd var tekin

Afmælið breyttist í martröð sekúndu eftir að þessi mynd var tekin
Fókus
Fyrir 2 dögum

Beggi Ólafs sýndi stelpunum hvernig Íslendingur gerir þetta

Beggi Ólafs sýndi stelpunum hvernig Íslendingur gerir þetta