Stephen „tWitch“ Boss sló eftirminnilega í gegn í dansþáttunum So You Think You Can Dance árið 2008 þar sem hann lenti í öðru sæti og eignaðist fjölda dyggra aðdáenda. Síðan gerði hann garðinn enn frægari þegar hann var ráðinn sem plötusnúður í spjallþáttum Ellen DeGeneres árið 2014.
Twitch fannst látinn á hótelherbergi í kjölfar þess að eiginkona hans hafði samband við lögreglu. Hann hafði þá yfirgefið heimilið án þess að taka bílinn sem var víst mjög ólíkt honum að gera. Samkvæmt fréttum erlendra miðla fannst er talið að tWitch hafi tekið eigið líf.
Twitch skilur eftir sig eiginkonu og þrjú börn á aldrinum 3-14 ára. Hann var fertugur er hann lést.
Eiginkona hans, Allison Holker, staðfesti fréttirnar í tilkynningu til People þar sem hún sagði:
„Það er með þungu hjarta sem ég deili því að eiginmaður minn Stephen er farinn frá okkur. Stephen gerði hvert herbergi sem hann steig inn í bjartara. Hann forgangsraðaði fjölskyldu, vinum og samfélaginu far öllu öðru og að lifa lífinu af ást og ljósi skipti hann máli. Hann var stoð fjölskyldunnar okkar, besti eiginmaðurinn og faðir, og innblástur til aðdáenda sinna.
Að segja að hann hafi skilið eftir sig arfleifð er vægt til orða tekið, og jákvæð áhrif hans munu áfram vera við lýði. Ég er viss um að það komi ekki dagur þar sem við munum ekki heiðra minningu hans. Við biðjum um frið á þessum erfiða tíma fyrir bæði mig og sérstaklega vegna barna barna okkar þriggja. Stephen við elskum þig, við söknum þín og ég mun alltaf spara síðasta dansinn fyrir þig.“