Eins og frægt varð reis stjarna Kleina hátt þegar hann ruglaði saman reytum með tónlistarkonunni Svölu Björgvins. Sambandi þeirra lauk þó um það leyti sem Kristján Einar var handtekinn og síðan hefur hann verið einhleypur. Það olli því talsverðu umtali þegar hann birti nýja mynd á Instagram af sér – berum að ofan – með fáklæddri dömu.
Áhrifavaldurinn og sjómaðurinn hefur verið duglegur á Instagram síðan hann varð frjáls maður, greindi meðal annars nýverið frá því að hann hafi verið stunginn tvisvar í fangelsinu.
Sjá einnig: Kristján Einar opnar sig um fangelsisvistina – Í klíku með Pólverjunum og stunginn tvisvar
Með myndinni skrifaði hann „dreamteam“ eða „draumateymi.“
View this post on Instagram
Í kjölfarið sagðist Kleini hafa fengið fjölda skilaboða frá forvitnum fylgjendum sem vildu vita hvort um væri að ræða nýja kærustu en hann vísaði því alfarið á bug að svo væri.
Hún heitir Klara Líf Gunnarsdóttir og er fædd árið 2000. Hún er naglafræðingur og vinnur á sólbaðastofunni Sælan.
Klara er einnig fyrirsæta og hefur meðal annars setið nokkrum sinnum fyrir dagatal fyrir RS Partar, sem er sérhæft fyrirtæki í vörubíla og vagnavarahlutum.
View this post on Instagram
View this post on Instagram
View this post on Instagram
Klara er í sambandi og eignaðist sitt fyrsta barn í lok október. Því má ætla að myndin sem Kleini birti sé ekki ný.
Draumateymið sem áhrifavaldurinn vísar í er örugglega draumkennd geta þeirra til að vinna saman sem fyrirsætur. En eftir að hann kom fram á sjónarsviðið hér á landi hefur hann verið duglegri að láta reyna fyrir sér sem svo kölluð Instagram-fyrirsæta eins og sjá má hér að neðan.
View this post on Instagram
View this post on Instagram
View this post on Instagram