fbpx
Laugardagur 26.október 2024
Fókus

Nýtt nafn Stjörnutorgs setti allt á hliðina – „Er fólki ekkert heilagt?“

Fókus
Miðvikudaginn 16. nóvember 2022 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjörnutorg í Kringlunni, eins og við höfum þekkt það árum saman, er úr sögunni. Í stað Stjörnutorgs kemur nýtt veitinga- og afreygingarsvæði sem hefur fengið nafnið Kúmen, samkvæmt árshlutauppgjöri Reita fasteignafélags. Vonir standa um að svæðið verði opnað við lok næstu vikur.

Forstjóri Reita, Guðjón Auðunsson, sagði í samtali við mbl.is að hann viti ekki nákvæmlega hvaðan nýja nafnið kemur en það hafi staðið eftir að lokinni rýni margra aðila. Fyrsti stafurinn K sé þó sami upphafsstafur og í Kringlunni og kúmen er krydd sem gjarnan er notað á kringlur.

Segja má með sanni að nýja nafnið hafi vakið nokkra furðu og hefur verið höfð að háði og spotti á samfélagsmiðlinum Twitter undanfarna daga.

Hrafn Jónsson, kvikmyndagerðamaður, taldi að hér hafi auglýsingastofa heilastormað yfir sig.

Blaðamaðurinn Oddur Ævar er miður sín vegna málsins.

Guðmundur Jörundsson, fatahönnuður, telur þetta verstu endurmarkaðssetningu í heimi.

Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson, varaþingmaður Viðreisnar, furðar sig á því að Alþingi sé að sóa tímanum í umræðu um Íbúðalánasjóð og Íslandsbankasöluna þegar jafn stórt mál og þetta hefur komið upp.

Iðunn Garðarsdóttir, aðstoðarmaður matvælaráðherra, segir nafnið verða furðulegra því oftar sem maður segir það.

Svo er spurning hvort eitthvað sé hæft í þessari kenningu:

Aðrir hafa áttað sig á tengingunni sem nafnið hefur við Kringluna.

Svo eru þeir sem eru bara hreint ekki sáttir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Aldrei of seint slær rækilega í gegn

Aldrei of seint slær rækilega í gegn
Fókus
Fyrir 3 dögum

Diddy var kominn með buxurnar á hælana þegar ónefnd íþróttastjarna stöðvaði hann

Diddy var kominn með buxurnar á hælana þegar ónefnd íþróttastjarna stöðvaði hann