Hailie mætti til að styðja föður sinn, en rapparinn var vígður inn í frægðarhöll rokksins – Rock & Roll Hall of Fame – ásamt öðrum stórstjörnum á borð við Dolly Parton og hljómsveitinni Duran Duran á laugardaginn.
Það var haldin hátíðleg athöfn í Los Angeles og létu feðginin sig ekki vanta. Þau voru klædd í stíl, bæði í svörtum leðurjakka.
Eminem flutti nokkra slagara, eins og „My Name Is“, „Forever“ og „Not Afraid“ með tónlistarmönnunum Ed Sheeran og Steven Tyler.