fbpx
Miðvikudagur 04.desember 2024
Fókus

Rósa Björg Brynjarsdóttir, forstöðukona Skjólsins segir sárlega vanta úrræði fyrir konur í neyð: „Það sem þær eiga sameiginlegt er að allar eiga þær áfallasögu″

Guðrún Gyða Eyþórs Árnadóttir
Þriðjudaginn 1. nóvember 2022 19:33

Rósa Björg Brynjólfsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Rósa Björg Brynjarsdóttir er venjuleg kona, móðir með góða nærveru. Þegar maður talar við hana fær maður á tilfinninguna að hún sé kona sem vilji öllum vel,″ segir Tinna Guðrún Barkardóttir í nýjasta hlaðvarpi sínu, Sterk saman.

Rósa er forstöðukona í Skjólinu, sem er úrræði fyrir heimilislausar konur  Umræðan um hversu mikil vöntun er á úrræðum í málaflokknum hefur verið mikil, og þá sérstaklega úrræðum fyrir heimilislausa karlmenn á Íslandi.

Skjólið er úrræði fyrir konur sem opið er alla virka daga frá 10:00 á morgnana. Konukot lokar klukkan þrjú í eftirmiðdaginn og kemur þar af leiðandi í veg fyrir að þær konur sem þurfa á að halda, geta leitað skjóls, farið í sturtu, fengið heitan og góðan mat og aðstoð við að greiða úr alls kyns flækjum. Þar hafa þær einnig aðgang að öruggu neyslurými.

Rósa segir að þær sem vinna í Skjólinu hafi allar bakgrunn úr Konukoti og því hafi verið tiltölulega auðvelt að tengjast konunum þegar þær fóru að mæta í Skjólið.

„Við erum ekki að bjarga neinum, við erum að aðstoða konurnar við að sinna grunnþörfum og lækka þröskulda, ″ segir Rósa og bætir við að oft komi aðilar innan kerfisins í Skjólið til að hitta konurnar því það geti verið óyfirstíganlegt verkefni fyrir þær að labba inn á stofnun til að hitta þessa aðila.

Aðspurð um tilkomu þessa úrræðis segir Rósa að Agnes Biskup hafi látið gera úttekt og meta hvar vandinn væri mestur eða hvar þyrfti að bregðast við strax. Niðurstaðan var að nauðsyn væri á aðstöðu fyrir heimilislausar konur, svo  og þær sem búa við ótryggar aðstæður.

Úrræðið, sem staðsett er í kjallara Grensáskirkju er rekið af kirkjunni.

Í Skjólinu er unnið eftir skaðaminnkandi hugmyndafræði og konunum mætt á þeim stað sem þær eru hverju sinni.

„Það er öruggt neyslurými en reglur og rammi í kring um alla neyslu. Þær eru velkomnar þrátt fyrir að vera undir áhrifum en það má ekki  fara ekki með áfengi eða annað inn í hús. Það er geymt í læstum skápum sem þær hafa til umráða. Þær drekka og reykja úti en nota fíkniefni í öruggu rými þar sem allt er skráð og vel fylgst með.

„Konurnar sem leita til Skjólsins eru allar venjulegar konur, eins og ég og þú. Það sem þær eiga sameiginlegt er að allar eiga þær áfallasögu,“ segir Rósa Björg Brynjarsdóttir, forstöðumaður Skjólsins.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Rifjar tárvot upp líkamssmánun fjölmiðla

Rifjar tárvot upp líkamssmánun fjölmiðla
Fókus
Í gær

Konan mín elskar hópkynlíf – Hér er vandamálið

Konan mín elskar hópkynlíf – Hér er vandamálið
Fókus
Í gær

Hafa miklar áhyggjur af rapparanum eftir að hann kom fram á tónleikum um helgina

Hafa miklar áhyggjur af rapparanum eftir að hann kom fram á tónleikum um helgina
Fókus
Í gær

Hættulegt kynlífstrend slær í gegn hjá háskólanemum – Læknar segja unga karlmenn í lífshættu

Hættulegt kynlífstrend slær í gegn hjá háskólanemum – Læknar segja unga karlmenn í lífshættu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sólveig notar vímuefni í æð alla daga – „Ég get ekki meira af þessu lífi“

Sólveig notar vímuefni í æð alla daga – „Ég get ekki meira af þessu lífi“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hann var kappaksturinn holdi klæddur

Hann var kappaksturinn holdi klæddur