Einkaþjálfarinn Arnar Grant og Vítalía Lazreva hafa hafið sambúð saman samkvæmt Morgunblaðinu. Sagt er að parið búið saman í íbúð í Garðabæ en þau hafi sést reglulega saman í verslun Hagkaup í Garðabæ sem og á fleiri opinberum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Þannig birti Mannlíf í dag mynd af skötuhjúunum að versla í Costco í bæjarfélaginu.
Eins og frægt varð opnaði Vítalía sig um miður fallegt samband sitt við Arnar á síðasta ári. Hann var þá giftur en hefur síðan skilið við eiginkonu sína eftir að málið komst upp.
Vítalía bar Arnar þungum sökum til að byrja með, meðal annars vegna þátttöku hans í alræmdri pottaferð í Skorradal og ekki síður uppákomu á hóteli við þriðja mann. Reikna má með að Arnar verði lykilvitni komi til dómsmáls í pottamálinu en Arnar hefur síðan látið hafa eftir sér að lýsingar Vítalíu á hóteluppákomunni séu ekki sannleikanum samkvæmt.