Kona nokkur ákvað að ná sér niður á kærustu sinni eftir að upp komst um framhjáhald og ákvað svo að deila hefnd sinni á TikTok. Þetta er vinsælt afhæfi á samfélagsmiðlum og ætti fólk kannski að fara að hafa varann á ef þeir halda framhjá maka sem fylgist vel með TikTok hefðum.
Þessi tiltekna kona, Nicole Walker frá Englandi, sagði að henni hafi farið að gruna konu sína um græsku. „Ég bara var með þessa tilfinningu um að hún væri að fara á bak við mig.“
Nicole ákvað að beita brögðum til að komast að hinu sanna. „Ég skáldaði það upp að einn af vinum hennar hefði sagt mér sannleikann og hún svaraði: Hvaða vinur? Hvernig komstu að þessu?“
Það sem kom Nicole á sporið var að kærastan var farin að verja fleiri og fleiri nóttum án hennar, en þær hefðu áður varið hverri stund saman.
Þá var komið að Nicole að finna út hvernig hún ætlaði að svara fyrir framhjáhaldið. Hún ákvað að hitta vin sinn á veitingastað og leggja þar á ráðin.
„Ég veit ekki hvaðan ég fékk þessa hugmynd, ég hlýt að hafa séð þetta á netinu einhvers staðar,“ sagði Nicole.
Hún og vinurinn fóru saman í föndurbúð og keyptu þar það sem þeim vantaði. Síðan fór Nicole heim til kærustunnar, sem nú var orðin fyrrverandi kærasta, vitandi það að kærastan fyrrverandi væri ekki heima.
Hún tók svo sjálfa sig upp að ná fram hefndum. Hún hafði keypt glimmer í föndurbúðinni og dreifði því nú út um allt.
„Ég setti það alls staðar – ofan í eldhússkúffurnar, inn í ísskáp, inn í fyrsti. Ég setti það á rúmið því það er verst. Ég setti það á alla verstu staðina sem þú getur látið þér detta í hug. Það er erfitt að þrífa upp glimmer. Ég sendi henni myndbandið þegar ég gerði þetta fyrst. Hún grenjaði úr sér augun, hún var í miklu uppnámi.“
Síðan gaf Nicole þó upp að þær hefðu síðan náð sáttum og væru aftur byrjaðar saman í dag.
„Við byrjuðum aftur saman innan tveggja vikna. Hún bað mig afsökunar en ég sagði að ég hefði leyft reiðinni að ná yfirhöndinni. Ég sagði þó að hún hefði átt það skilið.“