fbpx
Föstudagur 27.september 2024
Fókus

Harðvítugar deilur Nicki Minaj og Latto setja netið á hliðina – „Sjúklega furðulega amma“

Fókus
Föstudaginn 14. október 2022 17:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rappararnir Nicki Minaj og Latto hafa átt í hörðum deilum á samfélagsmiðlum undanfarið, allt frá því að tilkynnt var að vinsælt lag með NickySuper Freaky Girls, sem hefur undanfarna mánuði átt sæti á topplistum, muni ekki vera gjaldgengt til Grammy verðlaunanna í flokki rapp-tónlistar heldur í flokki popp-tónlistar.

Nicki hafði skilað því inn til að vera gjaldgengt sem rapp-lag en starfsmenn Grammy-verðlaunanna ákváðu að lagið væri betur fallið sem popplag þar sem í því væri notuð klippa úr vinsælu lagi níunda áratugarins, Super Freak.

Nicki hefur gagnrýnt þessa ákvörðun og sagði að ef hennar lag ætti að keppa í flokki popp-tónlistar. Þá ætti lag rapparans LattoBig Energy, líka að teljast popplag en í því er notuð líka notuð klippa úr vinsælu lagi níunda áratugarins – Genius of Love.

„Mér finnst ekkert mál að vera færð úr rapp-flokknum svo lengi sem það er komið fram við okkur ÖLL af SANNGIRNI,“ sagði Nicki á Twitter. „Ef SFG (Super Freaky Girl) þarf að færa úr rappinu þá þarf líka að gera það við Big Energy! Allir sem segja annað eru Nicki hatarar eða tröll.“

Latto tók þessu ekki vel. Hún byrjaði á að senda Nicki skilaboð um málið svo þær gætu rætt það út. Nicki hins vegar tók skjáskot af samræðunum og deildi á Twitter með textanum: „Þessi Karen hefur líklega minnst á nafn mitt í rúmum 100 viðtölum. Hún segir að hún hafi beðið í röð eftir Pink Friday með Barbie keðjuna sína, topp, bleikt hár en ég dag, skyndilega ákveður hún að þegja þunnu hljóði frekar en að standa upp fyrir svörtu konunni sem hún hefur kallað sinn helsta innblástur.“

Þá varð Latto brjáluð. Hún birti á Twitter: „Í fyrsta lagi sendi ég þér skilaboð því ég vildi ekki fara á Internetið með samskipti við manneskju sem ég leit upp til. Eins og í fyrsta sinn sem ég sendi þér einkaskilaboð að spyrja þig um tíströð. Ég vildi segja eitthvað því eins og ég segi, ég er sammála, en hvernig þú ert að nálgast þetta virðist vera andstyggilegt sérstaklega eftir það hvernig við sögðum skilið við samræður okkar.“

Hún birti líka skjáskot úr einkasamtölum þeirra.

Latto bætti við að hún hafi ítrekað haft samband við Nicki í einkaskilaboðum til að ræða tíst sem henni þóttu vega að sér. „Þú spyrð hvers vegna ég sagði ekkert til að verja þig… það er sama svar við því og þegar þú spurðir hvers vegna ég óskaði þér ekki til hamingju. Þú ert bókstaflega eldri en mamma mín að reyna að vera eineltisseggur.“

Nicki, sem verður fertug í desember, svaraði Latto, sem er 23, ára „Allan þennan tíma hélt ég að þú væri að minnsta kosti 35 ára.“

Og nú er allt hlaupið í hund og kött á milli rapp-kvennana tveggja.

Latto heldur því enn fram að Nicki hafi verið að dissa hana á Twitter og bætti svo við ummælum sem nú hafa farið sem eldur í sinu um netheima. „Sjúklega furðulega amman er gift OG skyld fokking nauðgurum. Þú ert ekki að fara að leggja mig í einelti tíkin þín. Átrúnaðargoðið nú orðið andstæðingur minn, þú ert bara að hata.“

Nicki svaraði því til að ekki hafi Latto verið að hugsa um nauðganir þegar hún var að grátbiðja Nicki um samstarf. Hún hafi einnig ekkert pælt í því að einn framleiðenda Big Energy hafi verið ásakaður um ótilhlýðilega háttsemi. Svo benti Nicki á að hún hafi aldrei nauðgað neinum heldur „veitt milljónum innblástur og þú ert ein af þeim fávitinn þinn.“

Mörg skotin hafa gengið á víxl milli þeirra Latto og Nicki Minaj síðasta sólarhring og ekki hægt að gera grein fyrir þeim öllum en segja má að deilan sé orðin ljót. Nicki til dæmis hefur bent á aldursmun á foreldrum Latto sem dæmi um að henni sé sama um þolendur kynferðisbrota, en móðir Lizzo er 39 ára og faðir hennar á sjötugsaldri.

Segja má að þetta rifrildi sé að setja netheima á hliðina og er frasinn „sjúklega furðuleg amma“ nú að „trenda“ eða með öðrum orðum vinsæll á Twitter og hafa tugir þúsunda tísta verið birt með vísan í hann.

Rapparinn Azealia Banks blandaði sér svo inn í málið en hún telur ljóst að að Nicki Minaj þurfi aðstoð geðlæknis.

„Það er að verða óþægilega ljóst að þessi kona þarf alvöru hjálp því svona mikil reiði er engan vegin eðlileg. Það er orðið skuggalegt að sjá hana sökkva dýpra verandi móðir,“ skrifaði Azealia á Instagram. Hún sagðist vorkenna barni Nicki og benti á að svona rifrildi komi verst út fyrir Nicki en betur út fyrir þá sem hún rífst við.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Ragnhildur segir algengar ástæður fyrir því að einstaklingar með ADHD fari í skápaskrölt á kvöldin

Ragnhildur segir algengar ástæður fyrir því að einstaklingar með ADHD fari í skápaskrölt á kvöldin
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ferðamartröð Frosta og fjölskyldu – „Ég hef aldrei lent í öðru eins“

Ferðamartröð Frosta og fjölskyldu – „Ég hef aldrei lent í öðru eins“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjöttu alþjóðlegu Kvikmyndaverðlaun Ljósbrots

Sjöttu alþjóðlegu Kvikmyndaverðlaun Ljósbrots
Fókus
Fyrir 3 dögum

Nemendur á Laugum raða inn stigum í árlegri keppni – Tannburstar notaðir til að koma í veg fyrir svindl

Nemendur á Laugum raða inn stigum í árlegri keppni – Tannburstar notaðir til að koma í veg fyrir svindl