Birgitta Líf Björnsdóttir, athafnakona og LXS-díva, var gestur í útvarpsþættinum Veislan á FM957 skömmu eftir að Patrekur Jaime lét hana heyra það fyrir ummæli sem hún lét falla í viðtali hjá Stöð 2. Í viðtalinu sagði hún að LXS þættirnir væru „mest alvöru“ raunveruleikaþættir sem gerðir hafa verið. „LXS eru raunveruleikaþættir um líf okkar og kannski svona mestu, hvað segir maður, alvöru raunveruleikaþættir sem hafa verið gerðir. Þetta er bara ekkert leikið, ekkert „scriptað“, ekkert tekið aftur upp,“ segir Birgitta í viðtalinu.
Patrekur var allt annað en sáttur með þessi orð Birgittu eins og sjá mátti á Instagram-síðu hans í dag. Þar sagði hann meðal annars að þetta væri „slap in the face“ frá Birgittu.
Birgitta Líf segir í viðtalinu á FM957 að ummælin hennar hafi ekki átt að beinast að þeim. „Okkur finnst það ömurlegt því þetta var aldrei meint gagnvart þeim eða nokkrum öðrum,“ segir Birgitta. „Þeir eru svo flottar fyrirmyndir og við lítum upp til þeirra.“
Þá segir Birgitta að hún hafi ekki gert sér grein fyrir því að hún hafi orðað þetta svona. „Ég þurfti að horfa á þetta sjálf aftur og þá skildi ég hvernig þetta getur komið þannig út.“
„Ég átti bara ekki að segja fyrstu, þetta er einn af fyrstu. Það eru ekki mikið fleiri en Æði sem hafa gert svona raunveruleika. Okkar er líka ólíkt þeirra, hvernig þetta er sett upp og allt svoleiðis. Ég var aldrei að hugsa um neina aðra, ég var bara að útskýra hvernig við lögðum upp með að setja þættina upp.“
Í viðtalinu kemur fram að LXS-dívurnar séu búnar að reyna að heyra í Æði-strákunum til að ræða við þá um málið. Þær hafi þó ekki náð að tala við þá.
Hægt er að hlusta á Veisluna frá því í dag í heild sinni hér.