Þó hægst hafi á fasteignamarkaðinum þá detta daglega inn athyglisverðar og spennandi eignir inn á Fasteignaleit DV og Fréttablaðsins.
Eins slík eign er í Sörlaskjóli 70 sem er í sölumeðferð hjá Fasteignasölunni Höfða. Um er að ræða afar bjarta og stílhreina fjögurra herbergja risíbúð sem er um 72 fermetra að stærð en íbúðin er undir súð og því grunnflöturinn enn stærri. Íbúðin er á 2.hæð í þessu sex íbúða parhúsi (Sörlaskjól 70-72 – þrjár íbúðir í hvoru húsi) sem var byggt árið 1952.
Íbúðinni fylgir geymsla í sameign ásamt aðgengi að sameiginlegu þvottahúsi í kjallara. Yfir allri íbúðinni er rúmgott skráð 28,6 fm. geymsluloft með tveimur gluggum. Þá er gróinn garður umhverfis húsið og einstaklega fallegt útsýni til sjávar úr stofu og svölum.
Auglýst kaupverð eignarinnar er 59,8 milljónir króna en hægt er að fá frekari upplýsingar um kostnað við kaupin, fermetraverð og fyrri sölur á vef Fasteignaleitarinnar sem og fleiri myndir af eigninni sem teknar eru af Fasteignaljósmyndun.is.