fbpx
Fimmtudagur 15.ágúst 2024
Fókus

Dauðamyndirnar

Guðrún Gyða Eyþórs Árnadóttir
Sunnudaginn 24. júlí 2022 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ljósmyndatæknin var tiltölulega ný á Viktoríutímanum. Um var að ræða nýjan og spennandi miðil sem bauð almenningi upp á fanga stærstu augnablik lífsins. 

En það var meira en að segja það að taka ljósmynd. Viðkomandi þurfti að sitja grafkyrr í nokkrar mínútur og jafnvel þótt það tækist þokkalega var alls óvíst um gæði myndarinnar. Það var einnig aðeins á færi hinna efnameiri að leyfa sér slíkan lúxus.

Memento Mori

Almenningur áttaði sig fljótlega á að unnt væri að nýta tæknina til að varðveita minningu látinna ættingja og á nítjándu öld hófu ljósmyndarar að sérhæfa sig í því sem kallað var ,,Memento Mori” ljósmyndum. Ljósmyndum af látnu fólki. Þær hafa verið kallaðar dauðamyndir en orðrétt þýðir hugtakið ,,mundu að þú deyrð.”  

Í dag virka þessar ljósmyndir fremur truflandi en því má ekki gleyma að dauðinn var mun nærri fólki á nítjándu öld en í dag. Eðlilegur fylgifiskur daglegs lífs. Flestir létust heima, barnadauði var mikill og flestir gátu ekki búist við að lifa yfir fertugt. Sjúkdómar á við skarlatssótt, mislinga og kóleru grasseruðu og voru lítið annað en dauðadómur á tímum án bólusetninga og sýklalyfja. 

Auðveldar í tökum

Ljósmyndun bauð upp á nýja leið til að minnast ástvinar eftir dauðann, sérstaklega barna, og oftar en ekki var þetta eina ljósmyndin sem nokkurn tíma var tekin af viðkomandi. Margar þessara ljósmynda urðu eins og hverjar aðrar fjölskyldumyndir. Stundum voru þær af hinum látna einstakling einum og sér en einnig voru teknar myndir af foreldrum við vöggur látinna barna eða jafnvel með þau í fanginu. Það kom einnig fyrir að teknar voru myndir af allri fjölskyldunni með hinum látna. 

Þessar myndir voru ljósmyndurum auðveldari í tökum þar sem augljóslega þurfti ekki að hafa áhyggjur af því að myndefnið hreyfði sig. Ólíkt öðrum andlitsmyndum, sem teknar voru í ljósmyndastofum, voru þessar myndir venjulega teknar á heimilinu. Sá látni var klæddur í sitt fínasta púss og oft var raðað upp blómum eða táknum dauða og tíma á við stundaglas eða klukku við líkið. 

Aðrir kusu að fá ljósmynd þar sem hinn látni virtist á lífi og án allra tilvísana í dauðann. 

Sá látni skýrastur

Memento Mori ljósmyndarar urður sérfræðingar i að verða við óskum viðskiptavina sinna. Þeir stilltu upp börnum til að láta sem þau væru í friðsælum blundi til að veita syrgjandi foreldrum huggun. 

Stundum voru jafnvel opnuð augu hins látna og sumir ljósmyndarar buðu upp á farða hinn myndefnið til að láta líta svo að viðkomandi lifandi. Þeir komu sér einnig upp alls kyns tækni til að halda líkinu uppi. Það kom fyrir að það tókst svo vel að erfitt er að sjá hver er látinn á fjölskyldumynd, en yfirleitt er sá hinn sami mun skýrari en aðrir enda ekki um neina hreyfingu að ræða. 

Hér má sjá nokkrar sláandi ,,dauðamyndir” frá 19. öld. 

Hjón með látna dóttur sína. Andlit hennar látnu er áberandi skýrast á myndinni.
Látið barn.
Drengur heldur í hönd látins bróður.
Fjölskyldumynd frá 19. öld.
Maður heldur utan um látna eiginkonu sína.
Látið barn.
Hjón með látna dóttur sína.
Mjög sennilega hafa augun verið máluð á myndina.
Kona sem látist hafði af barnsförum ásamt barni sínu.
Syrgjandi móðir með barn sitt.
Þessi telpa er í raun látin.
Systkinahópur. Reyndar er yngsta systkinið lengst til vinstri látið.
Hjón með látið barn sitt. Sorgin þeirra er sláandi.
Hjón með látna dóttur sína á milli sín. Það gat verið snúið að hagræða líki á þennan hátt.
Þessar fallegu systur eru í raun báðar látnar.
Kólerufaraldur varð þessum systrum að bana.
Þótt ótrúlegt megi virðast hafði þessu unga kona verið látin í 9 daga áður þegar að myndin var tekin.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Útskýrir hvernig hún endaði á kynlífsklúbbi í Berlín

Útskýrir hvernig hún endaði á kynlífsklúbbi í Berlín
Fókus
Í gær

Ferðast aftur til Íslands eftir hörmulegt slys – Vilja græða sárin og upplifa Reykjavík

Ferðast aftur til Íslands eftir hörmulegt slys – Vilja græða sárin og upplifa Reykjavík
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég var orðinn 16 ára þegar ég vissi það en kom í raun ekki út af alvöru fyrr en 10 árum síðar“

„Ég var orðinn 16 ára þegar ég vissi það en kom í raun ekki út af alvöru fyrr en 10 árum síðar“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Nýjar vendingar í „hvarfi“ Nökkva Fjalars

Nýjar vendingar í „hvarfi“ Nökkva Fjalars