Tónlistarmaðurinn Jafet Máni Magnúsarson var að gefa út sitt fyrsta lag, undir listamannsnafninu JAFET.
„Ég hef komið víða við en er að stíga mitt fyrsta skref á sviði tónlistar. Lagið heitir Tengja mig og er samið í samvinnu við Bjarka Ómarsson, Bómarz, en hann hefur m.a. unnið með GDRN, Grétu Salóme, Chris Medina, Ingeborg Walther og Nick Ray,“ segir JAFET í tilkynningu um lagið.
„Lagið fjallar meðal annars um hroka þeirra sem telja sig vera æðri öðrum, sem og kvíða, sem ég hef sjálfur reynslu af, með þeim skilaboðum að við erum öll jöfn, sama hver við erum og sama hvað við erum að fást við hverju sinni,“ segir JAFET ennfremur, en hann er með fjölbreyttan bakgrunn þrátt fyrir ungan aldur:
Ég byrjaði ungur að leika í Þjóð- og Borgarleikhúsinu, hef einnig leikið í sjónvarpi og kvikmyndum, hef talsett barnaefni, lesið inn á Storytel og unnið á Ríkissjónvarpinu sem dagskrárgerðarmaður. Það hefur verið draumur minn lengi að gefa út mitt eigið lag og koma hugmyndum mínum á framfæri með þessum hætti. Ég hef verið mikið í kringum tónlist en faðir minn, Magnús Guðmundsson, var söngvari hljómsveitarinnar Þeyr. en ég hef ekki látið til skara skríða fyrr en nú.
Lag JAFETS, Tengja mig, má heyra í spilaranum hér fyrir neðan: