Nú kosta pítsurnar 1790 krónur og sagði Magnús Hafliðason, forstjóri Domino‘s, í samtali við Vísi að það væri ekki útlit fyrir að þessar hækkanir myndu ganga til baka, allavega ekki í náinni framtíð.
„Við erum hins vegar nokkuð ánægð með verðið og það sem fólk fær út úr því. 1.790 krónur fyrir pítsu á matseðli hjá okkur er ennþá frábær díll í samanburði við annað á markaðnum,“ sagði hann en það virðist sem svo að netverjar eru síður en svo sáttir með verðhækkunina.
Í febrúar varð stór breyting á Megaviku en nú er einungis hægt að nýta tilboðið á netinu eða í appinu.
Íslendingar tjáðu vonbrigði sín um verðhækkunina á Twitter.
Árið er 2029, það er megavika, allar pizzur á matseðli á 7990kr, ef þú sækir!
— Halldór Örn (@halldororn11) June 20, 2022
sko ef þú þarft að fara uppí 1790 krónur fyrir eina pizzu þá er þetta ekki Megavika lengur. Alveg eins hægt að leggja þetta niður. 1790kr fyrir Dominos pizzu er ekki Mega neitt
— 💎 Donna 💎 (@naglalakk) June 21, 2022
Bara 100kr ódýrari en þín pizza tilboðið með 2 áleggstegunum. Ekki eitthvða sem ég finn mig knúna til að stökkva á. Sérstaklega þegar pizzur barnanna rúmast innan þín pizza tilboðsins. Meh.
— Ósk Gunnlaugsdóttir (@oskuskaktus) June 21, 2022
Hádegis og Kvöldvaktartilboðið hjá þeim (miðstærð af matseðli + 0,5 gos) er á 1690kr. Þetta megaviku dæmi er búið að missa allt púll
— Morbaður (@fullurafgmjolk) June 21, 2022
Megavikan verður komin upp í 2000 kall og stök pylsa hjá Bæjarins upp í 1000 á innan við 5 árum. Mark my words.
— Þorvaldur Sigurbjörn Helgason 🇺🇦 (@dullurass) June 21, 2022
Fleiri netverjar ræddu málin við Facebook-færslu Vísis um fréttina og skiptust í fylkingar. Á meðan sumir gagnrýndu skyndibitarisann komu aðrir honum til varnar.
„Það er ekki nóg að það hækkar verðið, það minnkar alltaf sífellt meira á pizzunni!“
„Hvað er bensín líterinn búinn að hækka mikið a sama tíma. Persónulega versla ég talsvert meira af því en Dominos svo sé ekki hvað er svona hræðilegt við 100kr hækkun.“
„Þetta er ekki það eina sem hækkar… Matarverð er orðið klikkun hérna.. Væri til í að sjá hækkanir á matarkörfunni á síðastliðnum 2 árum ca!“
„Þær kostuðu fyrst 1000kr á MegaViku. Ekkert Mega neitt við þetta verð lengur.“
„Miðað við allar geðsjúku hækkanir á öllu allstaðar, þá kemur þetta engum á óvart.. 100kr er ekki neitt, Dominos pettsur eru geggjaðar“