Andrés Jónsson, almannatengill hjá Góðum samskiptum, birti vægast sagt umdeilda færslu á Twitter-síðu sinni á dögunum. Í færslunni velti Andrés upp þeim möguleika að rýmka heimildir krakka á aldrinum 12-18 ára til að vinna.
„Það vantar fólk í verslun, veitingar og þjónustu. – Þau og foreldrar þeirra myndu gjarnan vilja fá létta sumarvinnu fyrir þau. – Verndun táninga frá því að þurfa/mega vinna hefur gengið aðeins of langt,“ segir Andrés í færslunni. Þá segist Andrés hafa fengið fyrstu sumarvinnuna sína þegar hann var 12 ára en þá vann hann á lagernum hjá 66°Norður. „Var afspyrnu lélegur starfsmaður. En lærði margt og var stoltur af mér,“ segir hann.
Tillaga: Rýmkum heimildir krakka á aldrinum 12-18 ára til að vinna.
– Það vantar fólk í verslun, veitingar og þjónustu.
– Þau og foreldrar þeirra myndu gjarnan vilja fá létta sumarvinnu fyrir þau.
– Verndun táninga frá því að þurfa/mega vinna hefur gengið aðeins of langt.
— Andrés Jónsson (@andresjons) May 21, 2022
Þessi færsla Andrésar féll í ansi grýttan jarðveg hjá mörgum á Twitter. Fjölmargir gagnrýndu Andrés harðlega fyrir þessa tillögu hans og var til að mynda haft á orði að hann hefði mögulega verið „bitinn af geislavirkri frjálshyggju“. Þá er spurt hvers vegna það liggur svona á að koma börnum inn á vinnumarkaðinn. „Það var heil bylting til að leyfa börnum að lifa lífi sínu frjálst frá atvinnumarkaðinum og þú vilt henda þeim til baka?“ segir til dæmis einn netverji í athugasemdunum við færslu Andrésar.
„Hvaða rugl er þetta? Við erum að reyna að vinda ofan af streitu og kulnun á vinnumarkaðnum. Breyta menningu sem leggur ofuráherslu á vinnu. Stytting vinnuviku til dæmis. Ef þú ert í örvæntingu að reyna að koma 12 ára barninu þínu í atvinnu í sumar þarftu að endurskoða gildin þín,“ segir annar.
Þá velti fólk því fyrir sér hvort það væri ekki betra að leyfa frekar flóttafólkinu sem kemur hingað til lands að vinna eða eldra fólki sem komið er á ellilífeyrisaldur. „Nóg af vinnuafli hérna sem er ekki nýtt bara því kerfið er svo erfitt.“
Þrátt fyrir að margir hafi gagnrýnt Andrés fyrir færsluna þá hafa afar margir tekið undir með honum. „Byrjaði 13 og það var bara oft mjög skemmtilegt fyrir utan að vera lærdómsríkt og ég þurfti ekki að biðja um peninga fyrir öllu frá foreldrum sem veitti mikið sjálfstæði,“ segir til að mynda einn netverji sem tekur undir með Andrési.
„Sammála – byrjaði sjálfur að bera út blöð 11-12 ára og var búinn að vinna við áfyllingar í byggingavöruverslun og sem uppvaskari á grunnskólaárunum. Ég elskaði ekkert að vinna þessi störf, en það snerist ekki um það, heldur meira að læra að leggja á sig og hafa fyrir hlutunum,“ segir svo annar.
Þá segja fleiri að börnin þeirra séu einmitt á þessum aldri og að þau hafi áhuga á því að vinna. „Minn 12 ára spyr hvar hann geti unnið í sumar,“ segir til dæmis einn netverji og fleiri taka í svipaða strengi.