Um helgina kom út lagið „Því þú átt það skilið“ en hægt er að nálgast lagið á öllum helstu streymisveitum. Lagið er flutt af Dóra DNA í hlutverki Colonel Sanders en Dóri hefur sinnt því hlutverki með prýði undanfarin ár.
Lagið sem um ræðir er samið af Þormóði Eiríkssyni, Króla og Dóra sjálfum og fjallar það að um KFC-kjúklinginn sem Sanders stendur fyrir. Lagið var frumflutt í útvarpsþættinum FM95BLÖ síðastliðinn föstudag og myndband við lagið er í bígerð sem stendur.
„Hér er á ferðinni sumarhittari sem enginn má láta framhjá sér fara,“ segja höfundar lagsins.