Tom Cruise var viðstaddur heimsfrumsýningu Top Gun: Maverick í miðvikudagskvöld í Calif, San Diego. Kappinn mætti á svæðið með sannkölluðum glæisbrag en það gerði hann í USS Midway þyrlu sem hann flaug sjálfur staðinn rétt áður en hann vippaði sér út úr fararmáta sínum og rölti sallarólega að rauða dreglinum í glansandi smóking.
Cruise fékk miklar og góðar viðtökur frá viðstöddum sem hafa beðið í 36 ár eftir framhaldi af Top Gun sem kom úr árið 1986.
Það fór vel með Cruise og meðleikurum hans sem stilltu sér upp fyrir myndavélunum en meðal þeirra var Miles Teller sem leikur Bradley Bradshaw, son Nick Bradshaw, einnig þekktur sem Goose í upprunalegu Top Gun myndinni.
Forsala miða á Top Gun: Maverick hefst í dag, en myndin er síðan frumsýnd hér á landi 25. maí.
Horfðu á myndbandið hér að neðan.