Starfsfólk og velunnarar ræstingafyrirtækisins Sólar gerðu heldur betur vel við sig á föstudaginn þegar blásið var til veislu
til að fagna 20 ára afmæli fyrirtækisins. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var nóg um sólskinsbros í veislunni en hún var
haldin í nýjum höfuðstöðvum fyrirtækisins að Dalshrauni 6 í Hafnarfirði.