Embla Gabríela Wigum er íslensk samfélagsmiðlastjarna búsett í London ásamt kærasta sínum, frumkvöðlinum Nökkva Fjalari.
Embla er með rúmlega 1,5 milljón fylgjendur á TikTok og tæplega 100 þúsund fylgjendur á Instagram.
Hún starfar því alfarið við samfélagsmiðla og að búa til efni fyrir samfélagsmiðla, og því eru dagar hennar aðeins öðruvísi en einstaklings sem vinnur hefðbundið níu til fimm starf.
Í nýjasta myndbandinu hennar á YouTube leyfir hún áhorfendum að fylgja sér í gegnum daginn. Hún röltir um London, sinnir vinnunni og fer að versla. Dagurinn endar með kvöldmat með Nökkva.
Horfðu á myndbandið hér að neðan.