Umræða um söluna á stórum hlut ríkisins í Íslandsbanka hefur orðið hönnuðum innblástur í íroníska minjagripi. Lagt er út af hinu fræga slagorði íþróttavöruframleiðandans Nike, Just Do It, sem verður að Just Steal it.
Merki Íslandsbanka er raunar sláandi líkt Nike-merkinu sem gerir skopstælinguna meira grípandi.
Í boði eru bolir, derhúfur og drykkjarílát með merkinu en úrvalið má sjá nánar hér.