Gítarleikararnir Björn Thoroddssen, Gunnar Ringsted og Reynir Hauksson halda gítarveislu í Landnámssetrinu, Brákarbraut 13-15 í Borgarnesi, í kvöld kl. 20.
Þeir félagarnir hafa verið framarlega í gítarsenu Íslands um árabil en halda núna tónleika saman í fyrsta skiptið. Á efnisskránni eru lög eftir ýmsa þekkta tónlistarmenn, t.d Bítlana, Django Reinhardt, Jazz standardar, Íslensk lög og eigin tónsmíðar.
Sem fyrr segir hefjast tónleikarnir kl. 20 og aðgangseyrir er 3.000 kr.