fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Fókus

Ricky Gervais lætur Óskarinn fá það óþvegið – Gjafapoki stjarnanna næstum þrefalt verðmætari en meðalárslaun landsmanna

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 29. mars 2022 09:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breski grínistinn Ricky Gervais hefur aldrei farið leynt með tilfinningar sínar gagnvart Óskarsverðlaununum og hefur oft áður opinberlega gagnrýnt hátíðina. Hann gerði það á ný á Twitter á dögunum og tók fyrir verðmæti gjafapokanna í ár, en á hverju ári fá stjörnurnar, sem eru tilnefndar til verðlauna, rándýra gjafapoka.

Í ár var gjafapokinn að verðmæti rúmlega 18 milljóna íslenskra króna, eða um 140 þúsund dollara. Ricky gagnrýndi Akademíuna fyrir að flagga misskiptingu auðs í heiminum svona blygðunarlaust. Samkvæmt BLS voru meðalárslaun Bandaríkjamanna 6,6 milljónir króna árið 2021, gjafapokinn er því næstum þrefalt verðmætari en það sem Bandaríkjamaður fékk í laun að meðaltali í fyrra.

Þeir sem fengu 25 topp tilnefningarnar og kynnir hátíðarinnar fá þennan gjafapoka sem er kallaður „Allir vinna“ gjafapokinn. Hann tengist ekki Óskarsverðlaunahátíðinni beint heldur sér afþreyingar- og markaðsfyrirtækið Distinctive Assets um pokana og hefur gert það undanfarna tvo áratugi.

Samkvæmt NBC þá innihélt gjafapokinn í ár þriggja daga dvöl í kastala í Skotlandi, fjögurra daga dvöl á lúxus hvíldar- og baðstað í Kaliforníu, litla lóð í Skotlandi svo handhafar geta látið titla sig sem lávarð eða lafði (e. Lord/Lady), gjafabréf í fitusog, tíma í lífsstílsþjálfun, ýmsar fegrunaraðgerðir að andvirði 1,3 milljónir króna, bragðbætt poppkorn og fleira.

Breski grínistinn sagði að ef hann hefði verið kynnir hátíðarinnar í ár hefði hann byrjað á því að segja: „Halló. Ég vona að þessi hátíð komi venjulega fólkinu sem er að horfa á heima í gott skap. Ef þú ert til dæmis atvinnulaus, þá vonandi líður þér betur að vita að þó þú værir með vinnu þá myndu launin þín örugglega ekki vera jafn há og verðmæti gjafapokanna sem allir leikararnir voru að fá,“ sagði hann og bætti við.

„Ég er stoltur að tilkynna að þetta er fjölbreyttasta Óskarsverðlaunahátíðin til þessa. Þegar ég horfi út í salinn sé ég alls konar fólk, úr öllum samfélagshópum. Nema fátækt fólk, augljóslega. Þau mega fokka sér.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Var komin á þann stað að mér leið eins og ég væri að panta mér vanlíðan á Amazon“

„Var komin á þann stað að mér leið eins og ég væri að panta mér vanlíðan á Amazon“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Vikan á Instagram – „Ég er í sjokki og í skýjunum“

Vikan á Instagram – „Ég er í sjokki og í skýjunum“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ferill Katy Perry riðar til falls eftir heimskulegar ákvarðanir

Ferill Katy Perry riðar til falls eftir heimskulegar ákvarðanir
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ragnhildur segir okkur þurfa að gera þetta til að vernda heilsuna

Ragnhildur segir okkur þurfa að gera þetta til að vernda heilsuna
Fókus
Fyrir 3 dögum

Heilabrot: Aðeins örfáir sjá allar konurnar

Heilabrot: Aðeins örfáir sjá allar konurnar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Arnór segir gríðarlegan fjölda fólks læknast af stoðkerfisverkjum með hjálp kulda

Arnór segir gríðarlegan fjölda fólks læknast af stoðkerfisverkjum með hjálp kulda
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mía sér um afþreyingu fyrir börnin

Mía sér um afþreyingu fyrir börnin
Fókus
Fyrir 5 dögum

Goðsögnin Bob Newhart er látinn

Goðsögnin Bob Newhart er látinn