Fjölmargir Íslendingar hafa að undanförnu fengið gífurlegt magn af vinabeiðnum og skilaboðum frá því sem virðist kannski í fyrstu vera hið fegursta fólk sem er óvenju spennt fyrir alls kyns kynlífi. Þegar betur er að gáð sjá flestir þó að um gerviaðganga er að ræða.
Skilaboðin sem gerviaðgangarnir senda eru oftar en ekki nokkuð fyndin og furðuleg. „Ég er helvítis einstæð kona, þyrst í kynlíf, viltu ríða mér í dag? Hafðu samband við mig sem fyrst hér,“ segir til dæmis í einum skilaboðum frá gerviaðgangi. „Halló vinur. Ég er frjáls og elska kynlíf. Viltu ríða óþekkri móður eins og mér? Hafðu samband við mig sem fyrst,“ segir svo í öðrum.
Arnar Tómas Valgeirsson, blaðamaður á Fréttablaðinu, spéfugl og eilífðarpiparsveinn, er einn þeirra Íslendinga sem hefur orðið fyrir barðinu á kynlífsóðu gerviaðgöngunum og skilaboðunum þeirra.
Örvar Amors hafa samviskusamlega svifið framhjá Arnari Tómasi undanfarin ár og því hafa skilaboð erlendu tálkvendanna gefið honum nauðsynlegt krydd í tilveruna. „Mig langar að gefa ykkur smá innsýn inn í ástarlífið mitt og leyfa ykkur að kynnast konunum í lífi mínu,“ segir Arnar Tómas og deilir skemmtilegu myndbandi með fylgjendum sínum.
Í myndbandinu les Arnar upp fullt af skilaboðum sem gröðu gerviaðgangarnir hafa sent á Íslendinga. „Ástarjátningar á 21. öldinni,“ nefnir hann myndbandið. Sjón er sögu ríkari.