Í gær ræddi Heimir Már Pétursson, fréttamaður Stöðvar 2, við frambjóðendur til alþingiskosninga um ýmiss málefni. Einhverjir þóttu skara fram úr, til dæmis lofuðu netverjar Ingu Sæland fyrir að vera ákveðin og málefnaleg og Bjarna Benediktssyni fyrir að vera einkum kurteis og hnitmiðaður.
Það sem vakti þó mesta athygli var klæðnaður Björns Leví Gunnarsson, þingmanns Pírata. Hann hafði skellt sér í sitt fínasta púss og leit alveg glæsilega út á skjánum. Björn er vanur því að fara út fyrir kassann í fatavali þegar hann er á Alþingi og hefur meðal annars flutt ræður í engum skóm og sleppt því að vera í jakka við litla hrifningu íhaldssamra samstarfsfélaga hans.
Karen Kjartansdóttir, fyrrum framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, deildi mynd af Birni á Twitter og sagði hann líkjast kvikmyndastjörnu. Færslan fékk mikil viðbrögð og voru flestir sammála Karen.
Hvenær fór Björn Leví að líta út eins og kvikmyndastjarna? pic.twitter.com/BrhljzMZvA
— Karen Kjartansdottir (@karenkjartansd) September 23, 2021
Einhverjir sögðu hann líkjast meira James Bond og aðrir töldu hann líta út fyrir að vera flugfélagseigandi miðað við dressið.
Lítur út fyrir að eiga flugfélag
— Heiddi (@OgRunk) September 23, 2021
Bjútítrix Björns Leví:
✨ Bogfimi
✨ D&D
✨ Skeggolía
✨ Mikið súkkulaði
✨ Berjast við spillta stjórnmálamenn á hverjum degi https://t.co/AQfBt0Q7u2— Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir (@HeklaElisabet) September 23, 2021
Bara um leið og hann tók sér stöðu við hlið Sigmundar Davíðs https://t.co/jduYakZNOk
— Guðmundur Jörundsson (@gudmundur_jor) September 23, 2021