Leikkonan Dóra Jóhannsdóttir og Egill Egilsson flugmaður hjá Cargolux eru nýtt par.
Þau skráðu sig í samband á samfélagsmiðlum í gær og var því fagnað vel af vinum og vandamönnum. Bæði eiga þau börn frá fyrri samböndunum.
Dóra Jóhannsdóttir var í opinskáu viðtali við DV fyrir rúmu ári síðan þar sem hún opnaði sig um baráttu sína við alkóhólisma og hvernig hún náði vopnum sínum á ný í baráttunni við vágestinn eftir langtímameðferð í Svíþjóð.