fbpx
Miðvikudagur 18.desember 2024
Fókus

Björgvin Páll opnar sig um ofsakvíðakastið á HM – Hélt að lestarstöðin yrði sprengd í hryðjuverkaárás

Bjarki Sigurðsson
Þriðjudaginn 10. ágúst 2021 12:42

Björgvin Páll í leik með íslenska landsliðinu

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björgvin Páll Gústavsson, markvörður og bakari, er nýjasti gestur bræðranna Gunnars Dan og Davíðs Karls Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið. Björgvin fór yfir sögu sína, rótlausa æsku og brostið uppeldi sem leiddi hann inn í allskonar úrræði af hinu opinbera fyrir svokölluð vandræðabörn og unglinga.

Björgvin er maður sem ræðst aldrei á garðinn þar sem hann er lægstur, hann fer yfir hvernig hann hefur náð að tækla sína sjálfsvinnu og sjálfsuppeldi með taktískri sókn í ljósið sem hann sá glitta í í kjölfar þeirrar þjáninga sem hann fann sig í ekki svo mörgum árum áður.

Björgvin hefur rýnt í sjálfið og með það að leiðarljósi að koma auga á lygina sem svo hægt er að losa úr lífi sínu. Hann notar til þess alls konar verkfæri sem hann hefur svo rammað inni í það sem hann kallar „vopnabúrið“. Vopnabúrið er svo eitthvað sem hann notar óspart á sjálfan sig sem og opnar upp á gátt til þeirra sem hann leitast eftir að hjálpa í sínu starfi með ungum sem öldnum.

„Handboltamaður er rosa mikið ég þegar ég er yngri, eitthvað sem ég ég greip í, ég var alltaf handboltamaðurinn þegar ég þurfti þess,“ segir Björgvin er hann er beðin um að lýsa því hver hann nú er. Hann bætir svo við: „Síðan seinna meir verð ég faðir og allt hefur snúist við, núna er ég fyrst og fremst faðir, svo eiginmaður og svo handboltamaður.“

„Ég átta mig svo seint á reiðinni. Ég er sex ára gaurinn sem beit kennarinn minn, átta ára gaurinn sem endaði á barna- og unglingageðdeild og tíu ára strákurinn sem er sendur í sveit og fæ þar umsögnina að ég sé barnið sem erfitt er að elska,“ segir Björgvin en þetta kom fram í barnaverndarskjölum hans sem hann las fyrir þremur árum síðan.

Hann segir að í kjölfar lesturs þessara skjala hafi hann áttað sig á því hvernig sértækt minni getur virkað.

„Ef ég spila handboltaleik sem gengur vel man ég hann alveg mínútu fyrir mínútu. Spila ég hann illa hverfur hann bara svona!“

Í því samhengi las hann um mál sér beintengd sem maður myndi halda að ekki væri möguleiki að ekki muna en samt sem áður var sem málin og atburðirnir hefðu verið hreinsuð úr minni hans.

Árið 2019 krassar Björgvin í miðju HM í Köln í Þýskalandi. Hann var elstur í sínu liði og tók að sér að vera einn í hótelherbergi sem er alls ekki mælt með á mótum sem þessum. Hann finnur sig þarna einn með öllum sínum hugsunum og finnur að hann er með tvo karaktera á lofti. Handboltamaðurinn undir geðveikri pressu á stórmóti á meðan konan er heima Íslandi með þrjú börn og eitt af þeim orðið veikt.

„Þá byrjar bara allt að vinda upp á sig, ég fer út og fæ mitt fyrsta ofsakvíðakast, án þess að fatta það, í miðju móti og krassa algjörlega,“ segir Björgvin.

Hann yfirgaf hótelið um miðja nótt því hann átti erfitt með að ná andanum og fer þá inn í ranghugmyndir sem snúa að yfirvofandi hryðjuverki sem fól í sér að aðallestarstöðin yrði sprengd í loft upp. Hann hljóp í gegn um lestarstöðina og er hann náði að þrepum dómkirkjunnar í Köln brotnaði hann alveg niður og brast í grát. Strax í kjölfarið þarna um nóttina byrjaði Björgvin að grafa eftir svörum við þessu vitundar ástandi sem hann fann sig.

Björgvin hefur síðan að hann upplifði sitt ofsakvíðakast í Köln náð sér í ótrúlega reynslu og sankað að sér miklu vopnabúri í baráttu sinni við kvíða, athyglisbrest, ofvirkni og þunglyndi.

Hann fer í þessu viðtali yfir mikilvægi réttrar næringar, reglu hvað varðar svefnvenjur, rétta öndun og almennt rétta og gilda nálgun innan allra sviða lífsins hvort sem sé í leik eða starfi.

Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér fyrir neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Pútín niðurlægður

Nýlegt

Fókus
Í gær

Læknir varar við jólakynlífstrendi – „Snjókarlinn“ ekki hættulaus

Læknir varar við jólakynlífstrendi – „Snjókarlinn“ ekki hættulaus
Fókus
Í gær

Beggi Ólafs: Karlmenn, svona verðið þið „rétti makinn“

Beggi Ólafs: Karlmenn, svona verðið þið „rétti makinn“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Bettina átti erfiðan dag ófrísk og óglatt en uppskar verðlaun – Besta brúðkaupsmynd ársins er tekin í Kötlujökli

Bettina átti erfiðan dag ófrísk og óglatt en uppskar verðlaun – Besta brúðkaupsmynd ársins er tekin í Kötlujökli
Fókus
Fyrir 2 dögum

Oscar Pistorius kominn með nýja kærustu – „Er hún rugluð?“

Oscar Pistorius kominn með nýja kærustu – „Er hún rugluð?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Meghan Markle sagðist valdefla konur með fjárfestingu sinni – Nú er hún sökuð um „fátæktarklám“

Meghan Markle sagðist valdefla konur með fjárfestingu sinni – Nú er hún sökuð um „fátæktarklám“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Þetta var það versta sem ég gat ímyndað mér að myndi gerast fyrir mig – og það gerðist“

„Þetta var það versta sem ég gat ímyndað mér að myndi gerast fyrir mig – og það gerðist“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Metsöluhöfundur mokar út milljónajólabónusum

Metsöluhöfundur mokar út milljónajólabónusum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Anton Bjarki byrjaði að sauma föt 16 ára – Sækir innblástur í íslenska arfleifð

Anton Bjarki byrjaði að sauma föt 16 ára – Sækir innblástur í íslenska arfleifð
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þórhildur segir þetta einu ástæðuna fyrir því að fólk eigi að vera í sambandi

Þórhildur segir þetta einu ástæðuna fyrir því að fólk eigi að vera í sambandi