Ella Donnelly er vinsæll áhrifavaldur sem breiðir út boðskap um sjálfsást og jákvæða líkamsímynd. Hún elskar líkama sinn og draumur hennar er að allir geti elskað sig alveg eins og þeir eru. En það sem fer mest í taugarnar á henni er þegar fólk segir við hana að hún sé með „fallegt andlit fyrir stóra stelpu.“ The Sun greinir frá.
@elladonnelly_xoIt’s the finger tapping for me 😂😂##foryoupage ##fyp
„Ég grátbið fólk um að hætta að segja að ég sé með fallegt andlit fyrir stóra stelpu. Hvað í fjandanum þýðir það líka?“ Segir Ella í myndbandi á TikTok. Hún er með yfir 270 þúsund fylgjendur á miðlinum. Síða Ellu er ferskur blær á TikTok. Hún birtir myndbönd af sér og líkama sínum í alls konar klæðnaði, eins og stuttum toppum og í íþróttafatnaði.
„Þetta eru bara föt. Ekki láta neinn segja þér hverju þú mátt klæðast, ekki einu sinni þú sjálf,“ segir hún.
Netverjar taka myndböndum hennar fagnandi en það eru alltaf einhver nettröll mætt í kommentakerfið til að fitusmána hana. Ella lætur þessar athugasemdir ekki á sig fá og segist vita að hún sé fullkomin alveg eins og hún er.
@elladonnelly_xoLove you all ##foryoupage ##fyp
@elladonnelly_xoI’m mad my taggles are in my skirt ##foryoupage ##fyp
@elladonnelly_xoI’m dead ##foryoupage ##fyp