Öll athygli er á tilhugalífi Ben Affleck eftir að það sást til hans heima hjá Jennifer Lopez síðastliðinn föstudag.
Heimildarmaður E! News segir að stjörnurnar séu aðeins vinir. Þau voru trúlofuð árið 2002 og var parið kallað „Bennifer“ í fjölmiðlum. Þau hættu saman í janúar 2004.
Aðdáendur „Bennifer“ halda þó fast í vonina um að ástin blómstri á milli þeirra og keppast slúðurmiðlar vestanhafs um að fjalla um hin fræga föstudagshitting.
TikTok-notandinn Nivine Jay vekur athygli á samskiptum hennar og Ben í nýju myndbandi á miðlinum. Nivine lék lítið hlutverk í myndinni Neighbors og skrifaði bókina Cry Baby.
Í myndbandinu segir Nivine að hún hafi „matchað“ Ben á stefnumótaforriti ríka, fræga og fallega fólksins, Raya. Hún hélt að þetta væri gerviaðgangur og „un-matchaði“ hann. Ben greip þá til sinna ráða og sendi Nivine myndband á Instagram sem hún sýnir í myndbandinu.
„Nivine, af hverju „un-matchaðirðu“ mig? Þetta er ég!“ Sagði Ben.
@nivinejaySorry Ben 🥺🥱 ##raya ##benaffleck ##dating ##fyp♬ original sound – Amir Yass
E! News greinir frá málinu en hefur ekki tekist að staðfesta sannleiksgildi myndbandsins. Í samtali við E! segir Nivine að hún vildi Ben ekkert illt með því að birta myndbandið.
„Fullt af fólki er að kalla hann „kríp“ en mér finnst það ósanngjarnt. Ég var ekki að gera grín að honum í myndbandinu heldur mér sjálfri fyrir að halda að þetta væri gerviaðgangur. Þetta átti að vera fyndið,“ segir hún.