HBO Max birti í gær nýja stiklu úr þættinum, þá fyrstu þar sem atriði úr honum eru sýnd. Í fyrri stiklum voru engin atriði úr þættinum, það var beinlínis farið í kringum innihald hans en fólki samt sem áður haldið spenntu.
Þátturinn átti að fara í sýningu í maí á síðasta ári en vegna heimsfaraldursins frestaðist það um eitt ár. Upptökurnar fóru fram fyrir nokkrum vikum.
Því hefur verið haldið fram að það hafi tekist að fá Vinina til að koma fram í þættinum með því að greiða þeim háar fjárhæðir fyrir. Hefur því jafnvel verið haldið fram að þau hafi hvert og eitt fengið á bilinu hálfa milljón dollara til einnar milljónar fyrir þáttinn en það hefur ekki verið staðfest.
Þættirnir um Vinina voru sýndir frá 1994 til 2004 og eru meðal vinsælustu sjónvarpsþátta sögunnar. Þeir öðluðust miklar vinsældir á nýjan leik með tilkomu streymisveita og virðist sem gamlir aðdáendur hafi tekið þeim vel þar og nýir hafa líklega einnig bæst í hópinn.