Listakonan og áhrifavaldurinn Kristín Avon Gunnarsdóttir er gengin út. Sá heppni heitir Stefán Atli.
Parið fór í Jarðböðin við Mývatn um helgina ásamt dóttur Kristínar, Aríel Avon, og virtust þau skemmta sér konunglega.
Stefán Atli er sjómaður og á tvö börn úr fyrra sambandi. Kristín hélt sína fyrstu málverkasýningu í febrúar. Fyrir vann hún á tannlæknastofu og er einnig förðunarfræðingur.
Fókus óskar parinu innilega til hamingju með ástina.