BuzzFeed fékk exótíska dansara til að deila villtum leyndarmálum og sögum úr starfinu.
Fjöldi strippara deildu áhugaverðum sögum. Upplifun allra er ólík og BuzzFeed tekur það fram að það eigi ekki að taka þessar sögur sem reynsluheim allra strippara í heild, heldur eru þetta einstaka reynslusögur.
„Ég var strippari í um þrjú ár þegar ég var á þrítugsaldri til að borga niður námslánin mín. Síðustu mánuðina var ég ólétt af dóttur minni og þénaði tvöfalt það sem ég var vön að þéna. Þú trúir ekki hversu margir karlmenn voru hrifnari af mér því ég var áberandi ólétt.“
„Ég vann sem strippari í tvö og hálft ár. Það var einn maður sem kom reglulega og borgaði fyrir nokkrar klukkustundir í einkaherberginu. Hann borgaði mér tugi þúsunda aukalega svo ég myndi stíga á eistun hans í hælaskóm og slá hann með písk. Eins illa og mér leið með að meiða hann þá elskaði hann það.“
„Gagnkynhneigðar konur sem eru að gæsa eða að skemmta sér með vinkonum sínum voru verstu viðskiptavinirnir. Þær töldu sig ekki þurfa að borga inn á staðinn þar sem þær eru konur og við kvenkyns dansarar, sem meikar ekki sens þar sem þær eru ekki það sem laðar fólk á staðinn og staðurinn græðir ekkert á þeim.“
„Ég var nýútskrifuð úr framhaldsskóla og var að vinna sem strippari svo ég gæti haft efni á því að gefa börnunum mínum að borða (átti eitt þriggja mánaða og annað fimmtán mánaða). Ég var á sviði og horfði út í sal og sá besta vin pabba míns. Við fórum heim til hans og sváfum saman og ég fór heim með tvær og hálfa milljón, sé ekki eftir neinu.“
„Fólk utan bransans áttar sig ekki á því að það koma margir hingað fyrir nánd sem er ekki endilega kynferðisleg og ef það væri ekki fyrir strippstaði þá myndu þessir einstaklingar aldrei fá knús, haldast í hendur eða hafa tækifæri á að reyna við eða fá athygli frá annarri manneskju á þann hátt sem það vill.
Margir viðskiptavinir eru sáttir við að borga fyrir svona samskipti því mörkin og væntingarnar eru allavega skýr. Til dæmis eru nokkrir viðskiptavinir mínir á rófinu og hefðbundið tilhugalíf er annaðhvort ekki möguleiki eða heillar þá ekki. Mér þykir virkilega vænt um þessa viðskiptavini og er ánægð að geta hjálpað þeim á öruggan máta.“
„Það kom stundum vingjarnlegt kristið fólk með gjafapoka fyrir okkur á strippstaðinn og sagðist vera að „biðja fyrir sál okkar.““
„Mín reynsla er sú að eldri dansarar þéna alltaf langmest og það gerir yngri dansarana alveg klikkaða.“
„Ég dansaði í mörg ár. Það halda svo margir að stripparar séu brotnir einstaklingar eða dópistar, en ég sá ekkert svoleiðis. Ég elskaði að dansa og elskaði peninginn, þetta borgaði bókstaflega fyrir fyrsta húsið mitt. Ég var sú eina í vinkonuhópnum mínum sem átti eigið heimili þegar við vorum 21 árs.“
„Vinkona systur minnar var strippari á meðan hún var í háskóla. Hún sagði mér að tekjurnar séu ekki jafn háar og fólk heldur. Jú vissulega eru stundum frábær kvöld en tekjustreymið er óstöðugt sem getur verið vandamál.“
„Ég var sú tekjuhæsta á klúbbnum. Ég var aldrei með farða og fór ekki í brjóstastækkun, en fullt af fólki heldur að þú þurfir að gera það til að ganga vel.“