Hótel Keflavík er án efa eitt glæsilegasta hótel landsins. Það opnaði í maí 1986 en hefur farið í gegnum miklar breytingar undanfarin ár. Árið 2016 var Diamond Suites opnað. Allt almennt rými hefur verið tekið í gegn á síðustu átján mánuðum og allt hótelið að innan sem og utan á síðustu fimm árum.
Það er hægt að leigja sannkallaða lúxussvítu á hótelinu. Þær eru fimm talsins: The Ruby, The Sapphire, The Emerald, The Topaz og The Pearl. Það er hægt að bóka alla hæðina, og þá allar svíturnar, sem eina „apartment suite“ og kallast hún þá Diamond Suites. Einkasetustofa og heitapottar eru á hæðinni sem gestir hafa aðgang að.
Hótelið hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum og virðist vera sérstaklega vinsælt hjá áhrifavöldum.
DV ræddi við Lilju Karen Steinþórsdóttur, aðstoðarhótelstjóra Hótel Keflavík & Diamond Suites.
Lilja Karen segir að íslenskum gestum hefur fjölgað mikið undanfarið. Hún segir vinsældirnar megi rekja til tilboða sem þau eru með vegna Covid og bætir við að það hefur verið skemmtileg stemning á hótelinu og gaman að fá svona marga landsmenn.
Aðspurð hvað sé það sem vekur mesta athygli hjá gestum segir Lilja það örugglega vera móttökuna. „Við erum búin að breyta svakalega miklu. Við erum í raun og veru búin að endurnýja allt hótelið frá a til ö. Það eru bara nokkur herbergi eftir á Hótel Keflavík sjálfu, annars erum við búin að snúa öllu við. Og „wow-factorinn“ er eiginlega þegar þú labbar inn. Mótttakan er orðin stórglæsileg. Við erum búin að skreyta hana alla með Versace flísum, alls konar fallegum munum. Svo opnuðum við Diamond Lounge & Bar sem er staðsett í mótttökunni. Virkilega skemmtilegur vínbar, svolítið háklassa,“ segir Lilja Karen.
Hún segir gesti oft segja að þeim líði eins og þeir séu í útlöndum og þaðan kemur slagorð þeirra: „Við erum rétt hjá útlöndum.“
Lilja segir að hótelstjórinn, Steinþór Jónsson, hafi hannað allt. „Þetta er algjörlega honum að þakka,“ segir hún.
Verð fyrir gistingu á Hótel Keflavík & Diamond Suites má sjá neðst í greininni.
Ef þú kannast við hótelið þá er það hugsanlega vegna þess að þú hefur séð myndir af því á Instagram-síðum áhrifavalda. Það er örugglega erfitt að finna íslenskan áhrifavald sem hefur ekki dvalið á hótelinu undanfarið ár og sýnt frá því á Instagram.
Sjá einnig: Lúxusafmælisveislur áhrifavalda – Sólrún Diego og Tinna Bk fögnuðu með glæsibrag í gær
Við tókum saman nokkrar myndir frá áhrifavöldum sem hafa dvalið í lúxussvítum Hótel Keflavík.
Hvað kosta svo herlegheitin? Samkvæmt verðskrá er ódýrasta svítan frá 55.000 þúsund á vetrarverði en yfir hásumarið getur svítan kostað vel á nnað hundrað þúsund.
View this post on Instagram
View this post on Instagram
View this post on Instagram
View this post on Instagram
View this post on Instagram
View this post on Instagram
View this post on Instagram
View this post on Instagram
View this post on Instagram
View this post on Instagram
View this post on Instagram