Knattspyrnugoðsögnin Eiður Smári Guðjohnsen og fyrrverandi eiginkona hans Ragnhildur Sveinsdóttir selja húsið í Fossvoginum. Smartland greinir frá.
Eiður og Ragnhildur skildu í júní 2017 eftir 23 ára samband. Þau eiga saman fjögur börn.
Einbýlishúsið er 233 fermetrar að stærð og er ásett verð 150 milljónir krónur.
Húsið var byggt árið 1972 og er með sex herbergjum, þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Það er einnig rúmgóður bílskúr og garður.
Það fylgja engar myndir innan úr húsinu, hvorki á fasteignavef Mbl né Vísis. Þú getur séð húsið að utan hér að neðan.