Hjónin Arnar Þór Stefánsson lögmaður og Sunna Jóhannsdóttir selja glæsilegt hús sitt við Þrastanes í Garðabæ. Arnar er einn öflugasti lögmaður landsins og einn af eigendum LEX lögmannsstofu. Sunna er verkefnastjóri fjármála hjá Íslensku óperunni.
Eignin er 364,8 fermetrar, með níu herbergi, þar af fimm svefnherbergi. Húsið var byggt árið 1989 og er 23,5 fermetra bílskúr hluti af eigninni.
Húsið þykir einkar vandað og vel byggt, það er á þremur pöllum og fullbúin tveggja herbergja íbúð með sérinngang á neðsta palli hússins. Það er afgirt timburverönd með hitum potti, stór sólskáli með kamínu og fallegu útsýni. Það er einnig sauna klefi í húsinu.
179 milljónir króna eru settar á eignina. Sjáðu myndir hér að neðan.
Þú getur skoðað fleiri myndir og lesið nánar um eignina á fasteignavef Vísis.