fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Fókus

Kristján Þór og Gunna Dís sögð vera að skilja

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 18. nóvember 2021 20:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjónin Kristján Þór Magnússon og Guðrún Dís Emilsdóttir hafa haldið hvort í sína áttina samkvæmt frétt á Smartlandi mbl.is.

Kristján Þór er sveitarstjóri Norðurþings en er í veikindaleyfi fram að áramótum. Guðrún Dís er þekkt undir nafninu Gunna Dís og var afar vinsæl útvarpskona á Rás 2 áður en hjónin fluttu til Húsavíkur er Kristján tók við stöðu sveitarstjóra.

Nokkur styrr hefur staðið um störf Kristjáns undanfarið, meðal annars vegna þeirra ákvörðunar hans að útnefna sænsku söngkonuna Molly Sanden, sem söng Húsavíkurlagið í hinni vinsælu Eurovision-mynd, heiðursborgara Húsavíkur. Sumir sveitarstjórnarfulltrúar í Norðurþingi telja ekki rétt hafa verið staðið að útnefningunni og að söngkonan sé í raun ekki heiðursborgari Húsavíkur. Sjá nánar á vef Fréttablaðsins.

Smartland hermir að Gunna Dís hyggist flytja aftur til Reykjavíkur og hasla sér völl í fjölmiðlum á ný.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Lordi ekki hrifnir af rokklögum í Eurovision undanfarin ár – „Inn um annað og út um hitt“

Lordi ekki hrifnir af rokklögum í Eurovision undanfarin ár – „Inn um annað og út um hitt“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Það eru mistök að nota þvottaklemmur við útiþurrkun

Það eru mistök að nota þvottaklemmur við útiþurrkun
Fókus
Fyrir 5 dögum

Rómantísk stund þegar Jakob bað Gerðar – Sjáðu myndbandið

Rómantísk stund þegar Jakob bað Gerðar – Sjáðu myndbandið
Fókus
Fyrir 5 dögum

KALEO gefur út lag um skotárásir í Bandaríkjunum

KALEO gefur út lag um skotárásir í Bandaríkjunum