Samfestingur frá netversluninni Fashion Nova hefur verið talsvert á milli tannanna á fólki, enda töldu margir frekar um tannþráð væri að ræða en nothæfa flík.
Verslunin birti mynd af fyrirsætu í samfestingnum á Facebook og vakti hann mikla kátínu meðal netverja. Ástæðan er klofið á samfestingnum en netverjum þótti það furðulega lítið.
Sjá einnig: Samfestingur með ævintýralega lítið klof vekur kátínu
Ein kona ákvað að slá til og prófa þennan fræga samfesting. Sam Ramsdell er með yfir tvær milljónir fylgjenda á TikTok og keypti samfestinginn, meðvituð um að það yrðu alveg örugglega mistök.
Sam setti nýlega heimsmet í að vera með breiðasta munn í heimi.
„Það er ekki séns að píkan mín passi í þetta. Ég þarf að máta samfestinginn og sjá hvað James (kærastinn hennar) finnst,“ segir hún.
Sjáðu Sam máta samfestinginn hér að neðan. Hún þurfti að klæðast sundfötum undir, annars hefði allt verið til sýnis.
@samramsdell5##greenscreen – this is not okay 😂 ##fashionnova ##tryonhaul ##tryonwithme