Raunveruleikastjarnan Kylie Jenner hélt ansi veglegt hrekkjavökupartý í gærkvöldi í tilefni af því að sala á nýrri hrekkjavöku-snyrtivörulínu hófst. Teitið var haldið á heimili hennar, en því var breytt í hryllingshús fyrir kvöldið.
Á myndum sem Kylie deildi á samfélagsmiðlum má sjá flottar skreytingar, búninga, veitingar og drykki í hrekkjavökuþema. Helsti innblásturinn virðist hafa verið kvikmyndin A Nightmare on Elm Street, frá árinu 1984, en nýja snyrtivörulínan er undir áhrifum hennar. Í henni ásækir hinn goðsagnakenndi Freddy Kruger unglinga í gegnum drauma þeirra.
Þess má geta að hrekkjavökupartýið hennar Kylie var haldið heldur snemma, en sjálf hrekkjavakan á sér stað 31. október, sem er á sunnudegi þetta árið. Það er meira en hálfur mánuður í það.
Undanfarna daga hefur Kylie verið ansi dugleg að birta auglýsingamyndir fyrir snyrtivörulínuna. Þar má sjá hana í allskonar búningum, þar á meðal í hlutverki fórnarlambs Freddy Krugers, djöflabúningi, auk þess sem hún birti mynd af sér útataðri í blóði.
Hér að neðan má sjá myndir úr partýinu og auglýsingamyndirnar sem hún birti á Instagram.
View this post on Instagram
View this post on Instagram
View this post on Instagram
View this post on Instagram
View this post on Instagram
View this post on Instagram
View this post on Instagram
View this post on Instagram