Ingólfur Valur Þrastarson vakti landsathygli í apríl ásamt vinkonu sinni Ósk Tryggvadóttur þegar þau stigu fram í hlaðvarpsþættinum Eigin Konur og ræddu um starf sitt sem klámstjörnur á OnlyFans.
Fyrr í mánuðinum komust þau atur í fréttirnar fyrir að hafa tekið upp kynlífsmyndband á golfvelli í Vestmannaeyjum.
Sjá einnig: Íslendingar tóku upp kynlífsmyndband utandyra í Vestmannaeyjum – „Við vorum gripin glóðvolg“
Ingólfur var á dögunum í viðtali í hlaðvarpsþættinum „Poddið með Frikka“. Í þættinum segir hann frá því hvernig hann kom til með að byrja í klámi.
„Ég byrjaði að deita stelpu sem var strippari og hún vildi stundum taka upp myndbönd, bara ég og hún. Ég endaði á því að taka upp einhver myndbönd með henni, bara fokk it þetta er geggjað. Átti þetta bara. Svo fór ég að vinna eins og brjálæðingur, en svo kom Covid og um leið og Covid kom þá ákvað ég bara að stökkva á þetta,“ segir hann.
Ingólfur segir að það breyti hann engu persónulega að hann sé í fréttunum vegna athæfa sinna á OnlyFans. Hann viðurkennir að hann hefur ekki alla tíð verið svona opinn en þegar hann var yngri var hann mjög feiminn.
Eins og fyrr segir vakti klámmyndband hans og Óskar á golfvelli í Vestmannaeyjum töluverða athygli. Ingólfur greinir frá því að hann hefði einnig stundað kynlíf í Herjólfi.
„Ég gerði það inn í bíl. Við settum hettupeysur fyrir gluggana því það voru myndavélar [út um allt],“ segir hann.
Þú getur hlustað á viðtalið í heild sinni hér að neðan.