fbpx
Fimmtudagur 25.júlí 2024
Fókus

Rándýrt kynlífstæki til sölu í Góða hirðinum á 80% afslætti – „Aðeins 15.000- fyrir eðalvíbrator“

Bjarki Sigurðsson
Laugardaginn 14. ágúst 2021 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Facebook-hópnum „Hver hendir svona?“ birtist ansi áhugaverð færsla í gær frá einstakling sem hafði farið í verslunarferð í Góða hirðinn. Til sölu var nefnilega þessi glæsilegi titrari.

Færslan sem um ræðir

Þetta er þó enginn venjulegur titrari heldur er þetta stórt tryllitæki sem konum er væntanlega ætlað að setjast á þó svo að blaðamaður hafi lítið vitað um það enda gekk netleit hans að svipuðu tæki ansi brösuglega. Þá kom kommentakerfið til bjargar og ein sem fann tækið á vefsíðu sex.is.

Nýtt tæki kostar 75.000 krónur og því er um að ræða 80% afslátt. Fyrirsætan á kassa titrarans virðist vera að njóta sín í botn og greinilegt að hér er frábært tæki á ferðinni.

Meðlimir hópsins höfðu mjög gaman af þessari færslu og bárust yfir 50 ummæli. „Konan sem átti þetta henti því vonandi áður en það reið henni að fullu.“, „Bíddu, ha? Er þetta eitthvað fornaldar apparat? Eða alveg nýmóðins? Á að sitja ofan á þessari sósukönnu???“ og „Ætli að starfsmaðurinn sem verðlagði þetta sé að verðleggja samkvæmt reynslu,“ voru meðal ummæla.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem kynlífstæki er til sölu í Góða hirðinum en það vakti mikla athygli árið 2016 þegar „sjúskuð gervipíka“ var til sölu þar á aðeins 1.500 krónur. Þá var greint frá því að Góði hirðirinn fái til sín talsvert magn af kynlífsleikföngum en þau væru venjulega ekki sett í sölu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Tanja Ýr á von á barni

Tanja Ýr á von á barni
Fókus
Fyrir 2 dögum

Síðasta mynd Simmons og færslan sem hann útbjó fyrir andlátið

Síðasta mynd Simmons og færslan sem hann útbjó fyrir andlátið
Fókus
Fyrir 2 dögum

Jón Viðar og Sigga eiga von á barni

Jón Viðar og Sigga eiga von á barni
Fókus
Fyrir 2 dögum

Unnur Óla með eigin útgáfu af ,,Hawk Tuah“

Unnur Óla með eigin útgáfu af ,,Hawk Tuah“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Miðvesturríkjamamman sem elskar Ísland

Miðvesturríkjamamman sem elskar Ísland
Fókus
Fyrir 4 dögum

Lordi ekki hrifnir af rokklögum í Eurovision undanfarin ár – „Inn um annað og út um hitt“

Lordi ekki hrifnir af rokklögum í Eurovision undanfarin ár – „Inn um annað og út um hitt“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Afmæliskaka Trump eykur á ríginn milli Taylor Swift og Kim Kardashian

Afmæliskaka Trump eykur á ríginn milli Taylor Swift og Kim Kardashian
Fókus
Fyrir 5 dögum

Rómantísk stund þegar Jakob bað Gerðar – Sjáðu myndbandið

Rómantísk stund þegar Jakob bað Gerðar – Sjáðu myndbandið