Tónlistarmaðurinn ástsæli Bubbi Morthens er með þónokkur húðflúr. Hann er þó hvergi hættur að bæta í safnið, en í gær birti hann myndir af nýjum tattúum.
Nýju tattúin eru á bringu Bubba, en þau eru byggð á teikningum sem dætur hans gerðu. Annars vegar má sjá gítar, og hins vegar fígúru sem minnir á Óla Prik.
Bubbi birti myndir af tattúunum á Instagram og tók fram að það væri húðflúrarinn Chip Baskin sem sæi um að flúra sig.
„Er með flúr eftir dætur mínar þessi er eftir Aþenu @chipbaskin sér um mig“ skrifaði Bubbi við færsluna þar sem sjá mátti flúrið af fígúrunni.
Hér að neðan má sjá myndirnar af tattúum Bubba:
View this post on Instagram
View this post on Instagram