Nökkvi Fjalar Orrason, athafnamaður og frumkvöðull, hefur ekki látið bólusetja sig gegn Covid-19 og ætlar ekki gera það. Nökkvi opnaði sig um þetta á Instagram-síðu sinni í gærkvöldi þegar hann bauð fylgjendum sínum að spyrja sig að hverju sem er.
Einn fylgjandi Nökkva spurði hann hvaða bóluefni hann hafi verið bólusettur með en þá sagðist Nökkvi ekki hafa ekki þegið bólusetningu. Hann segir að ástæðan fyrir því sé sú að hann hafi lesið sig til um málið og taldi að það væri best fyrir hann að sleppa því.
„Þetta er viðkvæmt mál og er inboxið mitt fullt af spurningum. Flott að svara þessu hér. Ég er ekki á móti bólusetningu og skil þá sem hafa farið. Ég las mig vel til um þetta og kynnti mér málið. Niðurstaða mín var að kýla ekki á bólusetningu. Ég veit alls ekki öll svörin en ég taldi þessa ákvörðun besta að þessu sinni. Ég vinn að heilsu minni 24/7 og tel það mína samfélagslegu ábyrgð,“ sagði Nökkvi þegar annar fylgjandi spurði hann hvers vegna hann hafi ekki farið í bólusetningu.
Ákvörðun Nökkva hefur vakið afar mikla athygli en hún hefur fallið í nokkuð grýttan jarðveg hjá íslenskum netverjum á samfélagsmiðlinum Twitter. Þar hafa margir skotið harkalega á Nökkva fyrir ákvörðunina hans. Á meðal þeirra sem skjóta á Nökkva er fjölmiðlamaðurinn og skemmtikrafturinn Auðunn Blöndal, sem yfirleitt er kallaður Auddi Blö.
Auddi svaraði færslu sem Jón Bjarni, einn vinsælasti Twitter-notandi landsins, birti en í svarinu bendir Auddi á að allir meðlimir þáttanna 70 mínútna séu bólusettir. Þá skýtur hann á Nökkva og segir að hann hafi nú hermt eftir 70 mínútum áður en Nökkvi var duglegur að sækja innblástur í þeirra efni þegar hann framleiddi efni fyrir efni sem Áttan gaf út á sínum tíma. Svar Audda vakti gríðarlega lukku hjá netverjum á Twitter.
Benda honum á að allir úr 70min eru bólusettir. Hefur hermt eftir okkur áður 😊
— Auðunn Blöndal (@Auddib) July 27, 2021
Fleiri skutu á Nökkva í færslum á Twitter og enn fleiri furðuðu sig á ákvörðun hans, sumir furða sig sérstaklega á henni í ljósi þess að hann opnaði sig um að hafa neytt ofskynjunarsveppa fyrr á árinu. „Með svona sveppum trúi ég því að það sé ekki annað en hægt að fá eitthvað gott út úr þessu, þrátt fyrir að upplifunin sé slæm þá er þessi upplifun að fara að kenna þér eitthvað gott ef þú nýtir það,“ sagði Nökkvi þegar DV ræddi við hana um ofskynjunarsveppina fyrr á árinu.
Nökkvi Fjalar be like
🍄👍
💉👎— Margrét Erla Maack (@mokkilitli) July 27, 2021
Hvernig meikar þessi hugsun séns? pic.twitter.com/1ybAzDBaj2
— Sigurður Ingi Ricardo (@Ziggi92) July 27, 2021
Margir velta því þá fyrir sér orðum Nökkva um að hann sé að taka samfélagslega ábyrgð með því að fara ekki í bólusetningu.
Hate to break it to you en það er mjög samfélagslega óábyrgt að fara ekki í bólusetningu
— Kolbrún Birna (@kolla_swag666) July 27, 2021
ég sýni samfélagslega ábyrgð með því að vera ógeðslega fokking vöðvastæltur
— 🌏🌹 óskar steinn 🌹🌍 (@oskasteinn) July 27, 2021
Samfélagsleg ábyrgð og gagnrýnin hugsun eru ekki hugtök sem svona apakettir geta eignað sér bara af því að þeir gera ekki eins og hinir, lásu einhverja grein á antivaxxmommy punktur com og frétt sem Jakob Bjarnar pikkaði upp um kanadískan lækni sem er farinn í hausnum. https://t.co/kyPN8yLAZy
— Haukur Bragason (@HaukurBragason) July 27, 2021
Hér fyrir neðan má sjá meira sem fólk á Twitter hefur að segja um ákvörðun Nökkva. Hann er meðal annars kallaður hálfviti og trúður fyrir að bólusetja sig ekki.
— gisli (@gisli) July 27, 2021
Sæl öll 🤗
😓Margar fyrirspurnir komnar um mig og mína holdsveiki 🤕
😜niðurstaðan mín er sú að ég ætla að leyfa henni að heltaka líkama minn ✌️❤️
😌Ég veit alls ekki öll svörin en ég taldi þessa ákvörðun besta að þessu sinni 😊
— Hafþór Óli (@HaffiO) July 27, 2021
Wankstain https://t.co/hTliRBuas3
— Oddur Gunnarsson Bauer (@oddurbauer) July 27, 2021
Seinni myndin hefði bara átt að vera: „Af því að ég er hálfviti“
— Siggeir F. Ævarsson (@siggeirslayer) July 27, 2021
Las mig vel til..mkay hvað þýðir það? 😆😆 https://t.co/rISe51PJHQ
— Inga, MSc. ♀️ (@irg19) July 27, 2021
Nökkvi, ég hef gaman af þér en haaa?
— Jón Bjarni🇵🇸 (@jonbjarni14) July 27, 2021
Ef þú lest þig vel til um eitthvað hefur þú ekki lesið þér nógu vel til.
— Bragi Valdimar (@BragiValdimar) July 27, 2021
— Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir (@HeklaElisabet) July 27, 2021