Söngkonan Jennifer Lopez og leikarinn Ben Affleck voru sannkallað stjörnupar þegar þau byrjuðu saman árið 2002. Jennifer og Ben, eða Bennifer eins og þau voru gjarnan kölluð, hættu saman árið 2004 og olli það miklu vonbrigðum hjá aðdáendum stjörnuparsins.
Nú geta aðdáendur þeirra þó tekið gleði sína á ný því Jennifer og Ben eru byrjuð aftur saman. Orðrómur um að þau væru byrjuð að rugla saman reitum á ný fór nýverið á flug og skömmu síðar staðfesti Jennifer að þau væru byrjuð aftur saman. Aðdáendur Bennifer öskruðu um leið húrra og fóru að sökkva sér ofan í ástarlíf stjarnanna tveggja sem voru nú sameinaðar á ný.
Um helgina birti Jennifer fjórar myndir af sér á samfélagsmiðlum en myndirnar hafa vakið gríðarlega athygli hjá aðdáendum Bennifer. Ástæðan er sú að á fjórðu myndinni má sjá þau Jennifer og Ben kyssast. Á hinum myndunum má svo sjá Jennifer í sundfötum og með hatt.
5 2 … what it do …💗 pic.twitter.com/nQrM37ZLKF
— jlo (@JLo) July 24, 2021
Aðdáendur Bennifer á Íslandi eru í skýjunum með fréttirnar af stjörnunum og myndin sem Jennifer birti olli mikilli ánægju hjá aðdáendahópnum. Íslensk kona birti færslu á samfélagsmiðlinum Twitter þar sem hún velti því fyrir sér hvers vegna hún væri svo ánægð með að sjá þau Jennifer og Ben saman á ný.
getur EINHVER útskýrt af hverju ég er einlægt hamingjusöm yfir því að þessi tvö séu byrjuð aftur saman? https://t.co/9ZPEOx70Ji
— Sóla Þorsteinsdóttir (@solatho) July 25, 2021
Fjöldi fólks tók að sjálfsögðu undir með henni enda finnst fleirum yndislegt að sjá þegar ástin sigrar.
Okei já samt for REAL? Er hvorki aðdáandi hans né hennar og er ekkert invested í þessu fólki en allt við þetta GLEÐUR MIG SVO MIKIÐ?!?!
— Silja Björk (@siljabjorkk) July 25, 2021
Því þetta er fkn æðislegt, ástin maður!
— Inga, MSc. ♀️ (@irg19) July 26, 2021
Ég tók bókstaflega andköf þegar ég svæpaði yfir á síðustu myndina á Instagramminu hennar 🔥
— Snærós Sindradóttir (@Sindradottir) July 26, 2021
Ég fæ gæsahúð í hvert sinn sem ég hugsa um þetta
— Þorbjörg Þorvaldsdóttir (@torbjorg) July 25, 2021
They belong together
— Steingrímur (@Arason_) July 25, 2021
Nú þurfa bara Pitt og Aniston að taka saman aftur líka og kannski mun heimurinn hætta við að farast, Covid hverfa, það hættir að rigna í Evrópu og Trump fær hjartaáfall.
— Kristin Stefans (@1337kit) July 26, 2021
I know, right? Þetta gleður mig svoooo 💕… hvað er að manni?
— Ágústa Rúnarsdóttir (@AgustaRunars) July 26, 2021
Erum við ekki bara sökkerar fyrir happy ending?😍
— Ingibjörg E Sveinsd (@Ingaerna) July 26, 2021