„Kæra Diedra – Hvernig á að takast á við höfnun“ er yfirskrift greinar sem birtist hjá The Sun en Dear Deidra er liður hjá miðlinum þar sem veitt eru góð ráð til lesenda.
Að þessu sinni tekur Deidra fyrir höfnun, en einstaklingar ganga gjarnan í gegnum erfiðan tilfinningarússíbana eftir að hafa verið hafnað.
„Í sínu erfiðasta formi getur höfnun verið eitt af því erfiðasta til að komast yfir,“ skrifar Deidra.
„Hvort sem það er í vinnunni okkar eða í einkalífinu þá er enginn ónæmur fyrir vanlíðan og niðurdregni þegar hlutirnir ganga ekki upp.“
Deidra leggur til þrjár leiðir til að takast á við höfnun.
„Að sleppa af takinu og sætta sig við að hlutirnir gangi ekki upp eins og þú hefðir viljað er erfiðasti en mikilvægasti þátturinn í að takast á við höfnun.
Þetta mun verða sárt. Þú átt eftir að finna fyrir reiði, vonbrigðum, vanlíðan og vertu þess viss að þú ert ekki veikburða fyrir að finna fyrir þessum tilfinningum.
Þú átt eftir að finna fyrir heilu litrófi af tilfinningum og hefur rétt á hverri einustu þeirra.“
„Jafnvel þó þér líði eins og þetta sé allt þér að kenna þá er mikilvægt að vera raunsær og hugsa um aðstæður frá öðru sjónarhorni.
Hvort sem það er vinna eða einkalíf þá hafa einstaklingar ákveðnar þarfir og langanir sem þú veist kannski ekki af og getur ekki fullnægt.
Þú ert alltaf nóg, en kannski í nákvæmlega þessum aðstæðum þá ertu ekki það sem hin manneskjan þarf eða vill og þú getur ekki breytt því.“
„Þeir sem hafa upplifað höfnun áður geta tengt við þetta, en höfnun þarf ekki endilega að vera neikvæð lífsreynsla.
Hún opnar möguleikann á öðrum tækifærum sem höfðu kannski ekki staðið til boða áður.
Reyndu að hugsa um höfnun sem góðan hlut. Hún gefur þér tækifæri til að endurmeta hlutina og þú gætir endað með að fara í allt aðra átt en þú vildir – átt sem hentar þér betur.“