Íþróttakonan, áhrifavaldurinn og aktívistinn Edda Falak birti færslu á Twitter í gær þar sem hún segir frá virkilega furðulegu atviki. Í færslunni segir Edda að barnsmóðir fyrrverandi kærasta síns hafi sagt að hún ætti svokallaða vúdúdúkku af Eddu og að hún stingi dúkkuna í augun.
Vúdúdúkkur eru yfirleitt stungnar með því markmiði að sá sem dúkkan er gerð eftir verði fyrir sársaukanum. Þó er að sjálfsögðu um yfirnáttúrulegan hlut að ræða sem virkar án efa ekki. „Bjánalega fyndið en á sama tíma svo fucked up,“ segir Edda um athæfið í færslunni.
Hringbraut fjallaði um málið en í frétt þeirra er varpað ljósi á það hver það er sem er líklega barnsmóðirin sem Edda talar um. Gert er ráð fyrir því í frétt Hringbrautar að Edda sé að tala um leikkonuna Kristínu Pétursdóttur en hún er barnsmóðir Brynjólfs Löve Mogensen, verkefnastjóra samfélagsmiðla Árvakurs. Brynjólfur, eða Binni eins og hann er gjarnan kallaður, og Edda Falak voru í sambandi en þau hættu saman fyrr á þessu ári eftir að hafa verið saman í nokkra mánuði.
DV hafði samband við Kristínu Pétursdóttur vegna málsins. Í samtali við blaðamann tók Kristín fyrir ásakanir Eddu um að hún sé með nokkurs konar vúdúdúkku af Eddu en hún vildi ekki tjá sig meira um málið.
Það var svo weird dæmi Þegar áhrifavaldur og barnsmóðir fyrverandi sagðist vera með woodoo dúkku af mér og væri að stinga í augun á mér. Bjánalega fyndið en á sama tíma svo fucked up.
— Edda Falak (@eddafalak) May 27, 2021